„Við gerðum þetta reyndar í fyrra líka“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. mars 2026 21:47 Emil Barja vonar að heimavallarrétturinn muni skila sömu niðurstöðum og í fyrra. vísir / anton brink Emil Barja, þjálfari Hauka, var ánægður með að hafa tryggt deildarmeistaratitilinn í kvöld og vonar að sagan endurtaki sig frá því í fyrra. Ekki öll sagan hins vegar, Haukar vilja byrja þessa úrslitakeppni töluvert betur.
Haukar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn með 82-67 sigri gegn KR í úrslitaleik í lokaumferðinni. Haukarnir byrjuðu leikinn illa en spýttu síðan vel í lófana. „Þetta kom svolítið í seinni hálfleik. Þær voru allar að bíða eftir að næsta myndi stíga upp. En um leið og við settumst aðeins niður, settum okkar saman og allar stigu upp, þá sýndu við hversu góðar við getum verið… Þetta var svolítið einhæft en um leið og við fórum að láta boltann aðeins ganga á milli þá opnuðust aðrar. Mér fannst allar stíga vel upp í seinni hálfleik.“ Haukarnir þekkja það af eigin skinni, frá því í fyrra, hversu mikilvægur heimavallarrétturinn er í úrslitakeppninni. Sagan gæti endurtekið sig því Njarðvík endaði aftur í öðru sæti. „Þetta gefur gríðarlega mikið, eins og sýndi sig í fyrra. Þá var oddaleikur og pakkað hús, ég held að það sé það sem vann Íslandsmeistaratitilinn fyrir okkur í fyrra. Það er gott að vita að við eigum alla oddaleiki hér ef við förum í það í úrslitakeppninni.“ Haukar eru deildarmeistarar. vísir / anton brink Haukar mæta inn í þessa úrslitakeppni með 10 sigra í síðustu 11 leikjum. Segja má að þær séu sjóðheitar þessa dagana en Emil vonar að þær snöggkólni ekki eins og í fyrra. „Við gerðum þetta reyndar í fyrra líka, komum inn með einhverja tíu sigra en töpuðum síðan fyrstu tveimur leikjunum í úrslitakeppninni. Við verðum að byrja þetta af krafti frá fyrsta leik. Öll lið stíga upp í úrslitakeppninni. Þannig að ef við ætlum bara að vera á sama stað þá verður þetta erfitt,“ sagði Emil en Haukar mæta Stjörnunni í átta liða úrslitum.
Bónus-deild karla Haukar Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira