Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Atli Ísleifsson skrifar 25. mars 2026 07:25 Ragnheiður Erla Bjarnadóttir hafði mikinn áhuga á spurningakeppnum enda var áhugasviðið vítt. Þannig var hún gestur í Pallborðinu á Vísi árið 2021 til að ræða nýjustu myndina um James Bond, No Time to Die. Vísir/Vilhelm Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin, 72 ára að aldri. Hún lést á Landspítalanum 19. mars síðastliðinn.
Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun. Ragnheiður fæddist 7. maí 1953 og ólst upp í Skerjafirði en foreldrar hennar voru þau Bjarni Bjarnason og Alma Thorarensen. Í æviápripum hennar segir meðal annars að Ragnheiður hafi lokið stúdentsprófi frá MR 1973 og svo verið einn vetur í Leiklistarskóla SÁL. Auk þess stundaði hún söngnám við Söngskólann í Reykjavík en hún lauk þaðan burtfararprófi og stundaði síðar einkanám í söng í Vínarborg 1979 til 86. Ragnheiður Erla lauk svo B.Sc.-prófi í líffræði frá HÍ 1976, stundaði nám í guðfræði við HÍ frá 1982 og lauk embættisprófi í guðfræði 1987. Síðar stundaði hún nám í fornleifafræði við Boston University og lauk þaðan MA-prófi í fornleifafræði 1997. Ragnheiður var vígð til prests árið 1988 og var sóknarprestur á Raufarhöfn 1988 til 91. Hún vann mikið við ferðaþjónustu bæði innanlands sem og á erlendri grundu. Þannig starfrækti hún meðal annars ferðaþjónustuna Storð um tíma, öðru nafni Green Energy Travel Iceland, ásamt Magnúsi R. Kjartanssyni leiðsögumanni. Ragnheiður Erla hafði mikinn áhuga á spurningakeppnum og var hún meðal annars dómari og spurningahöfundur í Gettu betur í Ríkissjónvarpinu á árunum 1991, 1992 og 1997. Áhugasviðið var vítt og þannig mætti hún í Pallborðið á Vísi árið 2021 til að ræða nýjustu kvikmyndina um breska njósnarann James Bond, No Time to Die. Ragnheiður var ógift og barnlaus en systkini hennar eru þau Helga Hrefna Bjarnadóttir, fædd 1955, og Stefán Örn Bjarnason, fæddur 1957. Útför Ragnheiðar fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 8. apríl klukkan 15.
Andlát Ríkisútvarpið Trúmál Tengdar fréttir „Ég hitti Daniel Craig og hann er draugleiðinlegur“ Þrír af helstu sérfræðingum í James Bond á Íslandi kunnu vel að meta No Time to Die, nýjustu myndina um einkaspjæjara hinnar hátignar. Einn hefur hitt Daniel Craig, sem lék Bond í fimmta og síðasta skiptið í myndinni, og ber honum ekki vel söguna. 14. október 2021 18:30 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira
„Ég hitti Daniel Craig og hann er draugleiðinlegur“ Þrír af helstu sérfræðingum í James Bond á Íslandi kunnu vel að meta No Time to Die, nýjustu myndina um einkaspjæjara hinnar hátignar. Einn hefur hitt Daniel Craig, sem lék Bond í fimmta og síðasta skiptið í myndinni, og ber honum ekki vel söguna. 14. október 2021 18:30