Tiger fékk skell í endurkomunni en útilokar ekki þátttöku á Masters Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. mars 2026 08:30 Tiger Woods vonast til að geta keppt á Masters í næsta mánuði. getty/Jamie Squire Eftir rúmlega árs fjarveru sneri Tiger Woods aftur á golfvöllinn í úrslitum TGL-deildarinnar í gær. Endurkoman var þó ekkert sérstaklega ánægjuleg fyrir Tiger.
Hinn fimmtugi Tiger hafði ekki spilað keppnisgolf síðan í febrúar á síðasta ári þegar hann lék með sínu liði, Jupiter Links Golf Club, í annarri viðureigninni gegn Los Angeles Golf Club í úrslitum TGL í gær. Jupiter Links þurfti að vinna eftir að hafa tapað fyrsta úrslitaleiknum. Tiger og félögum varð ekki kápan úr því klæðinu og þeir fengu skell, 9-2. Los Angeles fagnaði því sigri á öðru tímabili TGL. Liðið var skipað þeim Tommy Fleetwood, Justin Rose og Sahith Theegala. Fyrir sigurinn fékk Los Angeles níu milljónir Bandaríkjadala, eða 1,1 milljarð íslenskra króna. „Á endanum vorum við flengdir,“ sagði Tiger eftir leikinn í gær. „Þrír ernir í röð og við svöruðum ekki. Ég hitti ekki í byrjun, þeir fengu meðbyr og við fengum hann aldrei aftur.“ Útilokar ekki Masters Tiger spilaði síðast á PGA-móti í júlí 2024. Aðspurður eftir úrslitaleikinn í gær útilokaði hann ekki að keppa á Masters sem fer fram á Augusta National vellinum í Georgíu 9.-12. apríl næstkomandi. „Líkaminn jafnar sig ekki eins og hann gerði þegar ég var 24-25 ára. Það þýðir samt ekki að ég reyni ekki að koma til baka. Ég hef reynt það um hríð. Ég hef glímt við erfið meiðsli síðustu árin sem ég hef þurft að berjast í gegnum og það hefur tekið tíma,“ sagði Tiger. „Ég held áfram að reyna. Ég vil spila. Ég elska mótið og hef elskað að vera þar síðan ég var nítján ára. Það skiptir mig og fjölskyldu mína miklu máli.“ Tiger hefur fimm sinnum unnið Masters, síðast 2019.
Golf Masters-mótið Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Sjá meira