Getur varla horft á sjálfan sig eftir eineltið Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. mars 2026 09:59 Barry Keoghan hefur notið vinsælda sem leikari en orðið fyrir miklu neteinelti. Phillip Faraone/Getty Images for ABA Leikarinn Barry Keoghan sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í bresku myndinni Saltburn hyggst mögulega hætta í leiklist. Ástæðan er að hans sögn gróft neteinelti þar sem virkir í athugasemdum hrauna yfir útlit hans.
Keoghan er fæddur árið 1992 á Írlandi og hefur getið af sér gott orð í leiklistinni. Hann var um tíma í sambandi við súperstjörnuna Sabrinu Carpenter og virtist njóta frægðarinnar og velgengninnar í upphafi ferilsins. Hér má sjá stiklu úr kvikmyndinni Saltburn: Undanfarin misseri hafa ákveðnir netverjar verið duglegir að skrifa ljótar athugasemdir undir myndir af Keoghan og sömuleiðis birt myndir þar sem þau segja meðal annars óskiljanlegt að Sabrina Carpenter hafi einhvern tíma skrifað texta um leikarann. Ásamt aðalhlutverki í Saltburn hefur Keoghan leikið í kvikmyndum á borð við Crime101, The Banshees Of Inisherin, Dunkirk og Batman. „Ég held ég hafi fjarlægt sjálfan mig frá netheimum en ég er ennþá forvitinn varðandi hvað sé í gangi þar. Ef ég fer á viðburð eða mæti eitthvert þá langar mann að sjá hvernig fólk brást við því. Og það er ekki fallegt að sjá. Það er rosalega mikið af hatri á Internetinu og ofbeldisfull umræða um það hvernig ég lít út,“ sagði Keoghan á dögunum í viðtalið við miðilinn SiriusXM. Hann segir það óumflýjanlega hafa áhrif og hann sé í hálfgerðum felum frá viðburðum. „Þetta er farið að verða vandamál hjá mér. Ég er farinn að fela mig. Ég fer ekkert því ég í alvöru forðast það útaf þessari umræðu.“ Hann segir það eitt vandamál en svo sé það miklu verra þegar þetta er farið að hafa áhrif á listsköpun hans. „Þegar þetta er farið að leka inn í starfið mitt sem leikari verður þetta stærra vandamál því þig langar ekki að vera á skjánum lengur.“ Keoghan á þriggja ára strák sem heitir Brando með fyrrverandi kærustu sinni Alyson Sandro. „Það eru mikil vonbrigði að hugsa til þess að hann muni þurfa að lesa allt þetta um mig þegar hann verður eldri.“ Aðdáendur kappans hafa þó haft jákvæð áhrif á hann og segir hann það hjálpa mikið. „Ég er svo ótrúlega heppinn að eiga svona stórkostlegan aðdáendahóp og fólk er alveg yndislegt. Það er mjög gott að finna fyrir stuðningi til dæmis þegar ég opna fyrir spurningar á viðburðum. Það er jákvæða hlið frægðarinnar.“
Hollywood Bíó og sjónvarp Samfélagsmiðlar Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira