Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Agnar Már Másson skrifar 19. mars 2026 18:05 Tinna Guðrún Barkardóttir varð fyrir líkamsárás af hálfu skjólstæðing í Vinakoti í mars 2022. Samsett Mynd Landsréttur hefur staðfest skilorðsbundinn dóm yfir konu á þrítugsaldri sem hafði verið sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022. Varanleg örorka brotaþolans eftir árásina var metin 50 stig af hundraði og varanleg örorka metin 50 prósent.
Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir konunni sem réðst á Tinnu Guðrúnu Barkardóttur sem þá var starfsmaður Vinakots. Tinna er í dag fjölskyldu- og fíkniráðgjafi auk þess sem hún stýrir hlaðvarpinu Sterk saman, þar sem hún tekur viðtöl við fólk sem þolað hefur átök í lífinu, svo sem fíknivanda. Hún opnaði sig um árásina í fjölmiðlum 2022 meðal annars í viðtali á Bylgjunni. Í héraðsdómi hafði árásarkonan verið dæmd í 18 mánaða fangelsi með skilorði til þriggja ára, fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa veist að Tinnu í Vinakoti í mars 2022, með því að hrinda henni, taka með báðum höndum í úlpu hennar og ýta henni ítrekað upp að útidyrahurðinni. Síðar, er Tinna var sest í sófa inni í herbergi, mun hún hafa togað í fætur hennar þannig að hún datt úr sófanum og því næst dregið hana fram í íbúðina og reynt að skella höfði hennar utan í vegg í stofunni, segir í dómnum. Í framhaldinu hefði hún farið aftur inn í herbergi og sest í sófa en konan þá komið til hennar og ýtt höfði hennar aftur á bak þannig að það rakst í gluggakistu. Hún mun svo hafa rifið í hár hennar og barið höfði hennar ítrekað í gluggakistuna. Loks veittist konan að Tinnu með því að grípa í hár hennar og axlir og slá henni utan í veggi og hurðir, allt með nánar tilgreindum afleiðingum fyrir Tinnu. Tinna hlaut heilahristing, klórför, kúlur á höfði og gat á hljóðhimnu vegna árásarinnar. Þá verndaði fyrri helftarlömun sem hún bjó við eftir heilablóðfall árið 2015 en hún hafði verið hjá sjúkraþjálfara vegna þess í aðdraganda árásarinnar. Fyrir dómi var lagt fram nýtt álit örorkunefndar frá 16. janúar 2026 þar sem kom fram að varanlegur miski Tinnu hafi verið metinn 50 stig og varanleg örorka metin 50%. Fyrra mat, sem héraðsdómur byggði á, mat miskann 35 stig og örorkuna um 40%. Sjúkraþjálfari brotaþola gaf einnig skýrslu fyrir Landsrétti og lýsti því að bataferlið gengi mjög hægt og ólíklegt væri að hún næði sama bata og hún hafði náð fyrir árásina. Konan sem réðst á Tinnu var á 19. aldursári þegar árásin var gerð og það var virt henni til refsilækkunar í héraðsdómi og hún dæmd í 18 mánaða fangelsi með skilorði til þriggja ára. Þessi nýju gögn þóttu þó ekki tilefni til þess að þyngja dóm yfir konunni og ákvað Landsréttur að staðfesta skilorðsbundinn fangelsisdóm héraðsdóms og fjögurra milljóna króna miskabætur, en bótakrafa var bundin við þá fjárhæð sem héraðsdómur hafði þegar dæmt.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira