„Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. mars 2026 16:52 Lovísa Thompson raðaði inn mörkum fyrir Val í dag. vísir / anton brink „Við náðum sem betur fer einhvernveginn að þétta raðirnar miðað við stöðuna á hópnum okkar,“ sagði Lovísa Thompson eftir nauman sigur Vals gegn Fram í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. „
Ég er ótrúlega ánægð með hópinn og liðið. Við gáfumst aldrei upp. Við vorum kannski ekki rólegar, en við tókum bara eina vörn í einu og eina sókn í einu og þetta small í lokin,“ bætti Lovísa við. Hún segir að það sýni karakter að liðið hafi aldrei farið á taugum þrátt fyrir að lenda í nokkur skipti tveimur og jafnvel þremur mörkum undir í dag. „Þetta var slatti af einhverjum lúmskum tæknifeilum hér og þar. Kasta boltanum frá okkur eða eitthvað svoleiðis. En við náðum alveg að halda ró og bara anda inn og út. Svo var þetta bara að taka eitt í einu og þá small þetta. Það þýðir ekkert að hugsa eitthvað mikið lengra í hadnbolta. Stundum ætlar maður sér að skora þrjú mörk í einni sókn, en þá fer bara verr.“ Valsliðið hefur verið að glíma við mörg og mikil meiðsli undanfarið og Lovísa þurfti því að bera þungan af sóknarleik liðsins í dag. Óhætt er að segja að hún hafi gert það með glæsibrag, en hún skoraði hvorki fleiri né færri en 15 mörk og þar á meðal sigurmarkið á lokasekúndu leiksins. „Ég tek bara mínu hlutverki bara eins og það er og reyni að gera mitt besta fyrir liðið. Þetta small saman í dag og bara heppni að það gerðist. Ég reyndi bara að gera mitt besta fyrir liðið og þetta á ekki að vera svona. En þetta gerðist í dag og það er bara gott að við unnum leikinn. Það hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa,“ sagði nokkuð hógvær Lovísa. Með sigrinum eru Valskonur svo gott sem búnar að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Liðinu nægir eitt stig í viðbót, en í raun mætti Valur tapa síðustu tveimur leikjunum, ef liðið tapar ekki með meira en sjö mörkum gegn ÍBV í lokaumferðinni. „Við þurfum bara að halda áfram að þróa okkar leik. Við eigum tvo leiki eftir í deildinni og mikilvægur leikur fyrir norðan næst. Við þurfum bara að vinna alla leiki sem í boði eru og halda áfram að stilla saman strengi. Við erum alltaf að byggja upp liðið því það eru skakkaföll og maður að koma í manns stað og það þar alltaf að aðlagast því. Við erum að gera það vel og við þurfum að halda því áfram.“ Hún segir einnig að þetta sé tækifæri fyrir yngri og óreyndari leikmenn að sýna hvað í þeim býr. „Þær eru að gera það sjúklega vel. Þær eru alltaf að fá aukna ábyrgð og taka mikilvægar ákvarðanir á mikilvægum tímapunktum, sem er gott fyrir þeirra reynslubanka. Þær eru að standa sig vel og það er líka gaman að fá að vera með þeim í því. Ef ég get hjálpað þeim eitthvað þá er það líka mjög ánægjulegt.“
Olís-deild kvenna Valur Fram Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira