KR - Kefla­vík 107-105 | Kefl­víkingar gáfu frá sér fimmta sætið

Kári Mímisson skrifar
Valur - KR Bónus deild karla Vetur 2026
Valur - KR Bónus deild karla Vetur 2026 vísir/Diego

KR vann 107-105 sigur þökk sé mistökum hjá Keflavík í lokasókn leiksins. Sigurinn lyftir KR upp í fimmta sæti deildarinnar en skilur Keflvíkinga eftir í sjötta sætinu. 

Allt stefnir því í einvígi KR og Vals í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. 

KR var næstum því búið að missa sigurinn frá sér í kvöld eftir að hafa verið fimmtán stigum yfir. 

Keflavík tókst að jafna en KR fékk lokasóknina. 

Þar gerði Keflavík mikil mistök. Boltinn skoppaði af hringnum en Keflvíkingar voru of frekir í frákastið, slógu í hringinn og þar af leiðandi var karfan dæmd góð hjá KR. 

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi von bráðar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira