Ævin­týri Stólanna lauk á spennu­leik

Arnar Skúli Atlason skrifar
Stólarnir geta þar með einbeitt sér að komandi úrslitakeppni.
Stólarnir geta þar með einbeitt sér að komandi úrslitakeppni.

Í kvöld fór fram leikur Tindastóls og Riga Zelli í Sikinu á Sauðárkróki þar sem gestirnir unnu 101-94. Leikurinn var í 16-liða úrslitum ENB deildarinnar og eru Stólarnir þar með úr leik.

Leikurinn hófst fjörlega og voru það gestirnir sem tóku völdin í upphafi leiks. Tindastóll var hins vegar aldrei langt undan. Frank Fidler fór mikinn hjá Riga í upphafi og var hann að taka mikið til sín sóknarlega og búa til körfu fyrir félaga sína. Hjá Tindastól voru Dedrick Basile og Taiwo Badmus að gera mest hjá Tindastóls liðinu og héldu þeir þeim inn í leiknum. Gestirnir komu muninum upp í 10 stig þegar mínúta var eftir af fyrri hálfleik en góður kafli hjá Tindastól lagaði stöðuna áður en hálf leikurinn var úti og var staðan í hálfleik 45-50.

Svipað var upp á teningnum í seinni hálfleik Tindastóll var að elta Riga og voru aldrei langt undan. Það hægðist á Fidler hjá Riga og stigu Janis Berzins og Roland Sucs heldur betur upp og skoruðu körfur í öllum regnbogans litum. Badmus hélt áfram að halda Tindastól við efnið og Júlíus Orri kom vel til leiks í seinni hálfleiknum. Leikurinn var í járnum fram undir lokinn en góður sprettur í lok leiks var það sem skildi liðin svo að. Riga stóð uppi sem sigurvegari í frábærum körfubolta leik þar sem sigurinn hefði getað dottið báðum megin. Lokatölur urðu 94-101.

Atvik leiksins

Riga tók sprett í stöðunni 89-93 og breyttu henni í 91-99 þegar lítið var eftir og var það of mikið þegar svona lítið var eftir af leiknum að Tindastóll náði ekki að svara gestunum.

Stjörnur

Hjá Tindastól var Taiwo Badmus góður með 27 stig og 10 fráköst, Júlíus Orri var með 17 stig, Dedrick Basile skilaði 16 stigum og 7 stoðsendingum og Adomas Drungilas var með 15 stig og 8 fráköst.

Hjá Riga var Frank Fidler atkvæðamestur með 20 stig og 8 stoðsendingar, Rolands Sucs og Janis Berzins með 19 stig hvor og Denis Lukashov var með 12 stig og 8 stoðsendingar

Dómararnir

Flott frammistaða og ekkert yfir þeim að kvarta. Sigmundur Már Herbertsson okkar dómari var mjög góður í dag.

Stemningin og umgjörð

Frábært að vera í Síkinu í kvöld og Skagfirðingar klárir í bátana fyrir úrslitakeppnina, það er staðfest.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira