Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Freyja Þórisdóttir skrifar 9. mars 2026 22:22 Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra og Ágúst Ingi Ágústsson, verkefnastjóri hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, hvetja konur til að bóka sig í skimun. Vísir/Vilhelm Þátttaka kvenna í skimunum fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini hefur aukist verulega síðustu ár og nálgast sett markmið um þátttöku. Skimanirnar fara fram á heilsugæslustöðvum um land allt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu en þar kemur einnig fram að Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segi aukna þátttöku skipta gríðarlega miklu máli. „Skipulögð skimun fyrir krabbameinum getur bjargað mannslífum. Þannig má greina krabbamein á forstigi eða grípa inn í áður en krabbamein myndast og stórauka líkur á lækningu. Ég hvet konur til að mæta þegar boðið kemur,“ segir Alma. Þátttaka í krabbameinsskimunum aukist mikið síðustu árin.Skjáskot/Stjórnarráðið Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að þátttaka kvenna í skimunum fyrir leghálskrabbameini hafi verið 70 prósent á síðasta ári og um 65 prósent í skimunum fyrir brjóstakrabbameini . Þátttakan hefur þar af leiðandi aukist um allt að sex prósentustig milli ára og hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár. Leghálsskimun – lítið mál! Konur á aldrinum 23 til 64 ára fá reglulega boð í leghálsskimun. Í janúar fór í loftið vitundarvakningin „Leghálsskimun – lítið mál!“ sem var samstarfsverkefni Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins, Krafts, Lífskrafts, Ungra athafnakvenna og SKS, sem er samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Þar mátti sjá konur framkvæma daglegar athafnir svo sem að fjarlægja hár af líkama sínum, skipta um dömubindi og fá gat í eyrað. Yfirskriftin var „við erum ýmsu vanar“. Konur hvetji konur til að mæta „Það er afskaplega jákvætt að sjá þessa miklu aukningu í þátttöku í skimunum fyrir krabbameini á síðasta ári,“ segir Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana. „Við erum að þokast jafnt og þétt upp á við. Þar vinna margar hendur gott verk, enda hefur þurft samstarf og samstillt átak fjölmargra sem koma að þessum skimunum og hvetja til þeirra á síðustu árum.“ Kannanir sýna að langflestar konur sem fá boð í skimun ætla sér að mæta en að sumar þeirra fresti því að koma í skimun af einhverjum ástæðum. Ágúst segir mikilvægt að sofna ekki á verðinum. „Þó að það sé gott að sjá að þátttaka í skimunum sé að aukast megum við ekki sofa á verðinum. Við þurfum áfram að hvetja konur til að mæta í skimun, og til að spjalla við vinkonur, mæður, dætur og frænkur og minna á skimunina. Svo væri ekki síður tilvalið að spjalla við erlendar vinkonur eða samstarfskonur og hvetja þær til að mæta,“ segir Ágúst Ingi.
Kvenheilsa Skimun fyrir krabbameini Krabbamein Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira