Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. mars 2026 09:02 Snorri Steinn Guðjónsson hefur skipulagt næstu mánuði hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta þrátt fyrir að vera ekki enn búinn að skrifa undir nýjan samning við HSÍ. vísir/sigurjón Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, valdi sitt sterkasta lið fyrir fyrstu leikina eftir Evrópumótið þar sem Ísland endaði í 4. sæti. Hann er bjartsýnn á að viðræður við HSÍ um nýjan samning fái farsælan endi. Á blaðamannafundi í gær tilkynnti Snorri íslenska hópinn fyrir vináttulandsleikina gegn Svíþjóð 19. og 21. mars. Jafnframt var greint frá því að Ísland myndi mæta Egyptalandi alls fjórum sinnum á næstu mánuðum, fyrst tvisvar ytra í maí og svo tvisvar hér á landi fyrir heimsmeistaramótið í byrjun næsta árs. Hópurinn gegn Svíum: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39) Ísland tryggði sér sæti á HM í Þýskalandi 2027 með því að ná góðum árangri á EM í janúar. Snorri segir gott að geta skipulagt sig fram í tímann. „Það bara gefur helling og ég finn það alveg. Það gefur ró og fyrirsjáanleika og líka tækifæri sem við þurfum að fara vel með og nýta. Það að við séum líka komnir með allavega sex leiki á móti frábærum þjóðum og heimsklassaliðum er gríðarlega gott og við erum að máta okkur við þá bestu. Svo verður bara að koma í ljós bara hvað þetta gerir fyrir okkur en ég er alla vega mjög ánægður með þetta,“ sagði Snorri í samtali við íþróttadeild eftir blaðamannafundinn í gær. Tekur tíma að ná sér niður En hvernig hafa vikurnar frá því Evrópumótinu lauk verið fyrir landsliðsþjálfarann? „Þær hafa bara verið þokkalegar. Það tekið alltaf smá tíma að ná sér niður og melta þetta allt og ég er ef eitthvað er líka bara enn svolítið í þeim fasa,“ sagði Snorri. Á Evrópumótinu í janúar náði Ísland sínum besta árangri á stórmóti í sextán ár.vísir/vilhelm „Það kannski litast líka aðeins af því að við erum ekki að fara í háa C-ið og það er meiri ró yfir hlutunum. Þannig að ég er ennþá þar en annars bara nokkuð brattur. Þessi gluggi kemur heldur fljótt eftir mót og það er yfirleitt þannig. En það er mjög gaman að fá þessa leiki og ég tala nú ekki um að fá þá hérna á heimavelli eftir mikið hæp í kringum liðið, þá er það mjög skemmtilegt.“ Snorri ákvað snemma að velja sinn sterkasta hóp fyrir leikina gegn Svíþjóð. Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon verður þó ekki með í leikjunum þar sem kona hans á von á barni á næstu dögum. Vilja þakka fyrir sig Snorri segir að hann muni frekar nýta leikina gegn Egyptalandi í maí til að prófa sig áfram þótt hann vilji alls ekki tala um tilraunamennsku í því samhengi. „Já, ég ákvað allavega mjög fljótt með þennan glugga. Eftir árangurinn á EM og áhugann og stemninguna sem var í kringum liðið þá fannst mér það bara einhvern veginn eðlilegast og rökrétt að velja mitt besta lið. Bæði það að stuðningsfólkið gæti séð þá stráka sem voru á EM, og eru að mínu mati okkar bestu handboltamenn, og eins bara fyrir strákana að koma og spila fyrir framan þessa áhorfendur og þakka fyrir sig. Þannig að það var strax ljóst,“ sagði Snorri. Snorri var ráðinn landsliðsþjálfari fyrir tæpum þremur árum. Hann hefur stýrt íslenska liðinu á tveimur Evrópumótum og einu heimsmeistaramóti. Framundan er HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs.vísir/vilhelm „Varðandi hinn gluggann þá í maí finnst mér óþarfi að tala um þetta sem einhvern tilraunaglugga. Ég kem til með að velja alvöru lið og við erum að fara að spila á móti alvöru þjóð sem við þurfum að nýta vel og gera eitthvað. En auðvitað kemur maður til með að taka stöðuna þar og nálgast kannski gluggana að einhverju leyti aðeins öðruvísi. Það verður langt liðið á mótið eða tímabilið hjá öllum leikmönnum og eins og ég þekki verður alls konar stand á mönnum og við þurfum bara að taka stöðuna þar. Þetta er kannski ekki tilraunaverkefni en ég get prófað hluti þar.“ Þráðurinn er fínn Núgildandi samningur Snorra við HSÍ rennur út á næstunni og viðræður hans við HSÍ um nýjan samning standa enn yfir. Snorri ásamt Sólveigu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra HSÍ.vísir/sigurjón „Þær eru bara í gangi og kannski ekkert mikið meira um það að segja. Maður tjáir sig kannski ekki um það sem stendur í samningnum, heldur ekki viðræðurnar. HSÍ og umboðsmaðurinn minn sem eru bara í því og svo verðum við bara að sjá hvernig það þróast á næstu dögum og vikum,“ sagði Snorri. En er hann bjartsýnn á að allt gangi eftir? „Ég er alltaf bjartsýnn, svona í lífinu almennt nema þegar þráðurinn styttist en hann er bara fínn eins og er,“ sagði Snorri og játaði því að það væri hans vilji að halda áfram með landsliðið sem hann hefur stýrt frá sumrinu 2023. Landslið karla í handbolta HSÍ Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira
Hópurinn gegn Svíum: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39)
Landslið karla í handbolta HSÍ Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira