Upp­gjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Ívar Logi Styrmisson var markahæstur hjá Fram með sjö mörk þrátt fyrir að hér virðist hafa verið brotið á honum.
Ívar Logi Styrmisson var markahæstur hjá Fram með sjö mörk þrátt fyrir að hér virðist hafa verið brotið á honum. vísir/Anton

Íslandsmeistarar Fram völtuðu yfir topplið Vals í Olís-deild karla í kvöld. Lokatölur 27-35 í leik sem náði í raun aldrei að verða spennandi.

Bæði lið voru frekar klaufaleg í sínum sóknarleik í upphafi leiks. Mikið af töpuðum boltum á báða bóga og færanýtingin ofan á það ekkert spes.

Framarar voru þó fljótlega búnir að hrista mesta slenið af sér og tóku forystu í leiknum. Staðan 5-7 eftir 13 mínútur og tók þá Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, leikhlé og lét sína menn heyra það nokkuð hressilega.

Arnþór Sævarsson skoraði tvö mörk í kvöld.vísir/Anton

Virtist það þó skila litlu þar sem gestirnir í Fram héldu vel í forystuna þrátt fyrir nokkur áhlaup Vals. Endaði það með því að Ágúst tók aftur leikhlé á 25. mínútu fyrir Val, þar sem hans menn voru heillum horfnir og staðan orðin 9-13. Rétt áður hafði Ágúst tekið einn allra besta leikmann deildarinnar, Arnór Snær Óskarsson, af velli fyrir slaka frammistöðu.

Líkt og eftir fyrra leikhléið virtist það engu skipta, heldur juku Framarar forskot sitt fyrir hálfleiksflautið. Sex marka munur á liðunum í hálfleik, 10-16.

Breki Hrafn Árnason var sáttur í kvöld.vísir/Anton

Eftir þennan góða fyrri hálfleik hjá Fram og jafnframt slaka fyrri hálfleik hjá Val, þá hélt sama stefið áfram inn í seinni hálfleikinn. Valsmenn náðu engan vegin að herja að forystu Fram í leiknum og Íslandsmeistararnir öruggir í flestum sínum aðgerðum á báðum endum vallarins.

Síðari hálfleikurinn varð því í raun að nokkurskonar formsatriði fyrir Framara að ljúka með sigri. Leikurinn rann því sitt skeið og fögnuðu Framarar frábærum stórsigri að Hlíðarenda.

Atvik leiksins

Í raun enginn vendipunktur eða stórvægilegt atvik í þessum leik. Ég ætla þó að gefa manni leiksins, Breka Hrafni Árnasyni, sviðsljósið hér, en hann varði oft á tíðum stórkostlega. Sérstaklega má þar nefna vítavörslu í fyrri hálfleik gegn Arnóri Snæ.

Rúnar Kárason var með þrjú mörk á Hlíðarenda í kvöld.vísir/Anton

Stjörnur og skúrkar

Breki Hrafn var besti maður vallarins, en hann varði 14 skot sem gerir 34% markvörslu. Ekki mátti sjá veikan blett í liði Fram í kvöld og áttu allir leikmenn liðsins flottan leik.

Frammistaða Vals var í raun hörmung. Topplið deildarinnar sem skíttapar á heimavelli eftir góða pásu á milli leikja, það er ekki boðlegt.

Dómarar

Ramunas Mikalonis og Þorleifur Árni Björnsson sáu um að dæma þennan leik og gerðu það vel. Leyfðu leiknum að fljóta nokkuð og voru ekki að dæma á óþarfa snertingar og átök, sem handboltadómarar eru oft of gjarnir á að gera.

Stemning og umgjörð

Ekki góð mæting í byrjun leiks á pallanna, líkt og Íslendingum er von og vísa. Hún skánaði þó þegar leið á leikinn. Stemningin var þó lítil þar sem leikurinn var í raun aldrei spennandi.

Ágúst: „Vantaði mikið upp á í dag og kannski fyrst og fremst hugarfarið“

Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var ekki hress með leik sinna manna í kvöld.

„Fyrir utan fyrstu 15 mínúturnar þá vorum við mjög slakir og ólíkir sjálfum okkur. Við vorum slakir í vörn og þeir opnuðu okkur hvað eftir annað og sóknarlega vorum við bara ekki með á nótunum í fyrri hálfleik. Vorum að skjóta mjög illa og Breki frábær í markinu hjá þeim. Við skilum okkur mjög illa til baka, ég held að við séum með einhver sjö mörk á okkar úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik,“ sagði Ágúst um leik sinna manna.

Ágúst vonaðist eftir betri seinni hálfleik eftir ákveðið afhroð í þeim fyrri þar sem liðið var sex mörkum undir, en svo varð ekki.

„Ég hafði vonast til að við myndum éta þetta aðeins niður í seinni hálfleik og gera þetta að leik kannski síðustu tíu mínúturnar. Því miður þá vantaði bara mikið upp á í dag og kannski fyrst og fremst hugarfarið hjá okkur öllum.“

Aðspurður út í hugarfar síns liðs þá virtist það koma Ágústi á óvart miðað við undanfarann fyrir leikinn.

„Það er mjög sérstakt. Vikan var mjög góð æfingalega séð, þannig að það voru engar forsendur til þess að ætla að við yrðum slakir í dag. Framararnir voru svo sem mjög góðir, en það var líka bara því við vorum bara langt frá okkar besta og áttum ekkert skilið úr þessum leik.“

„Við þurfum að nýta næstu daga til þess að lappa upp á okkur og vera klárir hérna á mánudaginn á móti HK. Við þurfum að sýna mun betri frammistöðu í þeim leik til þess að ná í tvo punkta,“ sagði Ágúst að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira