Leik lokið: Njarðvík - Haukar 98-115 | Haukar mættu í hefndarhug til Njarðvíkur Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 4. mars 2026 18:30 Frá leik Njarðvíkur fyrr á tímabilinu Njarðvík missteig sig í toppbaráttu Bónus deildar kvenna í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Haukum, 98-115. Með sigrinum jöfnuðu Haukar Njarðvík á toppi deildarinnar og eru bæði lið nú með 26 stig. Njarðvíkingar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 11-0 á meðan Haukum tókst ekki að koma boltanum í körfuna. Haukar tóku þá leikhlé sem reyndist þeim afar vel og var liðið búið að jafna metin skömmu síðar. Á lokamínútum fyrsta leikhluta fór allt að ganga upp hjá Haukum sem komust í níu stiga forskot þegar leikhlutanum lauk. Annar leikhluti var afar jafn framan af en Haukar héldu áfram forskoti sínu. Um miðbik leikhlutans gekk Haukum hins vegar ekki að koma boltanum í körfuna og sóknarleikurinn varð kærulausari. Njarðvíkingar nýttu sér það og söxuðu á forskot Hauka og var munurinn kominn í tvö stig þegar flautað var til hálfleiks. Þriðji leikhluti byrjaði einkum vel hjá gestunum úr Hafnarfirði sem tókst að ná sex stigum á móti engu á fyrstu mínútum leikhlutans. Þá var ljóst að heimamenn voru allt annað en sáttir við dómgæslu leiksins og létu vel í sér heyra. Haukar leiddu með þrettán stigum þegar þriðja leikhluta lauk, 75-88. Haukar héldu haus út fjórða leikhluta og tókst að sigla sigrinum örugglega heim. Atvik leiksins Það er viðsnúningur Hauka í fyrsta leikhluta. Þetta leit ekkert ofboðslega vel út fyrir lið sem var mætt í hefndarhug en liðinu tókst að snúa því við. Stjörnur og skúrkar Amandine Justine Toi var stigahæst í liði Hauka með 33 stig og fimm stoðsendingar. Krystal-Jade Freeman var með 26 stig og 11 fráköst. Brittany Dinkins var með 29 stig fyrir heimakonur, tíu fráköst og þrjár stoðsendingar. Danielle Victoria Rodriguez kom þar næst með 24 stig, fimm fráköst og fimm stoðsendingar. Stemning og umgjörð Ágætis mæting í IceMar höllina og létu stuðningsmenn beggja liða vel í sér heyra inn á milli. Umgjörðin var alveg frábær og geta Njarðvíkingar verið stoltir af heimavelli sínum. Dómarar Bjarki Þór Davíðsson, Jóhannes Páll Friðriksson og Sófus Máni Bender stóðu vaktina á parketinu í kvöld. Þeir voru með þjálfara beggja liða í hálsakotinu á sér nánast allan leikinn, mér persónulega til mikillar ánægju en þvílík seigla hjá þeim að láta það ekki á sig fá. Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Haukar Körfubolti