Hundruð milljóna frá íslenskum skattgreiðendum til heilbrigðisþjónustu erlendis Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 4. mars 2026 08:31 Nýlega barst mér svar við fyrirspurn á Alþingi til heilbrigðisráðherra um efnaskiptaaðgerðir. Þar er að finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar um fjölda aðgerða sem hafa verið framkvæmdar erlendis á sjúkratryggðum einstaklingum sl. ár, og hafa verið niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands – niðurgreiddar af íslenskum skattgreiðendum. Niðurgreiðslan nemur hundruðum milljóna á ári – slagar í milljarð frá árinu 2022. Hundruð milljóna frá íslenskum skattgreiðendum til heilbrigðisþjónustu erlendis, bara vegna efnaskiptaaðgerða. Ég spurði ráðherrann því að því hvort sjúklingunum gæfist kostur á niðurgreiddri efnaskiptaaðgerð hjá innlendum aðilum með sömu skilyrðum og greinilega gilda fyrir aðgerðir erlendis. Svar ráðherrans var afdráttarlaust: Sjúkratryggðir sjúklingar geta ekki gengist undir efnaskiptaaðgerðir hjá sjálfstætt starfandi innlendum læknum. Hvernig má þetta vera? Hvernig réttlæta stjórnmálamenn þessa framkvæmd, þessa furðu meðferð á skattfé almennings? Bæði gagnvart sjúklingum, gagnvart læknum hér á landi og gagnvart þeim sem borga: skattgreiðendum. Ég hef sagt það áður og segi það aftur að íslenskir vinstrimenn, eins og heilbrigðisráðherra er, eru fastir í fordómum og gamaldags kreddum þegar kemur að heilbrigðismálum. Það er ótrúlegt að þeim skuli líða betur að millifæra fé íslenskra skattgreiðenda til erlendra heilbrigðisþjónustuaðila, fremur en til innlendra aðila; til innlendra lækna. Ég mun fylgja þessu eftir hér á Alþingi, en hvet fjölmiðla sömuleiðis til að taka þetta til skoðunar. Það hlýtur fleirum en mér að blöskra þessi mismunum og þessi óskiljanlega meðferð á skattfé. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokkurinn Heilbrigðismál Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Skoðun Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Nýlega barst mér svar við fyrirspurn á Alþingi til heilbrigðisráðherra um efnaskiptaaðgerðir. Þar er að finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar um fjölda aðgerða sem hafa verið framkvæmdar erlendis á sjúkratryggðum einstaklingum sl. ár, og hafa verið niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands – niðurgreiddar af íslenskum skattgreiðendum. Niðurgreiðslan nemur hundruðum milljóna á ári – slagar í milljarð frá árinu 2022. Hundruð milljóna frá íslenskum skattgreiðendum til heilbrigðisþjónustu erlendis, bara vegna efnaskiptaaðgerða. Ég spurði ráðherrann því að því hvort sjúklingunum gæfist kostur á niðurgreiddri efnaskiptaaðgerð hjá innlendum aðilum með sömu skilyrðum og greinilega gilda fyrir aðgerðir erlendis. Svar ráðherrans var afdráttarlaust: Sjúkratryggðir sjúklingar geta ekki gengist undir efnaskiptaaðgerðir hjá sjálfstætt starfandi innlendum læknum. Hvernig má þetta vera? Hvernig réttlæta stjórnmálamenn þessa framkvæmd, þessa furðu meðferð á skattfé almennings? Bæði gagnvart sjúklingum, gagnvart læknum hér á landi og gagnvart þeim sem borga: skattgreiðendum. Ég hef sagt það áður og segi það aftur að íslenskir vinstrimenn, eins og heilbrigðisráðherra er, eru fastir í fordómum og gamaldags kreddum þegar kemur að heilbrigðismálum. Það er ótrúlegt að þeim skuli líða betur að millifæra fé íslenskra skattgreiðenda til erlendra heilbrigðisþjónustuaðila, fremur en til innlendra aðila; til innlendra lækna. Ég mun fylgja þessu eftir hér á Alþingi, en hvet fjölmiðla sömuleiðis til að taka þetta til skoðunar. Það hlýtur fleirum en mér að blöskra þessi mismunum og þessi óskiljanlega meðferð á skattfé. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.