Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Freyja Þórisdóttir skrifar 1. mars 2026 15:29 Mærsk býr yfir einum stærsta flota heims. Shipspotting.com Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins.
Þar er einnig greint frá því að ákvörðunin sé tekin með öryggi að leiðarljósi: „Öryggi áhafna okkar, skipa og farms viðskiptavina er áfram í forgangi hjá okkur“. Á katarska fréttamiðlinum Al Jazeera kemur fram að íranski byltingarvörðurinn hafi tilkynnt um lokun sundsins í gær. Þeir segja þar frá því að engum skipum verði hleypt í gegn. Þrátt fyrir að vera mjótt rúmar sundið stærstu olíuflutningaskip heims. Helstu olíu- og gasútflytjendur í Mið-Austurlöndum reiða sig á það til að flytja birgðir á alþjóðamarkaði á meðan innflutningsþjóðir treysta á óslitinn rekstur þess. Á danska fréttamiðlinum DR er haft eftir Tine Choi Danielssen, aðalstefnumótunarsérfræðing hjá danska viðskiptalífeyrisjóðnum PFA, að vaxandi órói á svæðinu muni líklega valda því að olíuverð hækki á morgun. „Þegar markaðir lokuðu á föstudag kostaði olíutunnan sjötíu og þrjá dali, en búist er við að verðið á tunnuna fari yfir áttatíu dali – og það er ekki óraunhæft að það fari yfir hundrað,“ segir Tine. Fréttin hefur verið uppfærð.
Danmörk Skipaflutningar Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira