Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 21:10 Garðar Ingi Sindrason var öflugur í kvöld. Vísir/Anton FH-ingar líta vel út þessa dagana í Olís-deild karla í handbolta en þeir unnu sannfærandi sjö marka sigur á nágrönnum sínum í Haukum, 32-25, á Ásvöllum í kvöld. Þetta var sjötti deildarsigur FH-inga í röð og þeir komast með honum upp í annað sætið, einu stigi á eftir toppliði Vals. Garðar Ingi Sindrason var frábær með átta mörk og fimm stoðsendingar fyrir FH. Leikurinn fór jafnt af stað og liðin skiptust á að hafa forystuna framan af. Þegar líða fór á hálfleikinn lokaði Daníel Freyr Andrésson markinu með röð lykilvarna og kom i veg fyrir að Haukar næðu að fylgja eftir sóknarlega. Haukum tókst einungis að skora þrjú mörk á síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiks. FH fór þá inn í hálfleikinn með fimm marka forskot, 12-17. Í síðari hálfleik hélt FH frumkvæðinu og náði mest átta marka forskoti. Haukar minnkuðu muninn niður í þrjú mörk en nær komust þeir ekki og sigldi FH því öruggum sjö marka sigri heim. Niðurstaðan sannfærandi 25-32 sigur FH-inga og liðið komið í 2. sæti deildarinnar með 27 stig, einu stigi meira en Haukar sem sitja í 3. sæti. Atvik leiksins Það hlýtur hreinlega að vera kaflinn þar sem Daníel Freyr lokaði marki FH-inga og Haukar höfðu engin svör við því. Stjörnur og skúrkar Daníel Freyr Andrésson var með 45% markvörslu með 17 skot varin í liði FH. Lok, lok og læs.Anton Brink Símon Michael Guðjónsson og Garðar Ingi Sindrason voru svo markahæstir í liði FH með átta mörk hvor. Markahæstur hjá Haukum var Andri Fannar Elísson með fjögur mörk. Stemning og umgjörð Mjög góð stemning var á Ásvöllum og það var vel mætt í stúkuna, svona eins og við má búast í Hafnarfjarðarslag. Dómarar Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson stóðu vaktina á parketinu í kvöld. Hlynur Leifsson var eftirlitsmaður. Þægileg vakt í kvöld og ef það voru vafamál þá var bara kíkt í skjáinn - ekki flókið. Olís-deild karla Haukar FH