Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Jakob Bjarnar skrifar 12. febrúar 2026 16:50 Ingibjörg Ólöf Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir takast á um formennsku í Framsóknarflokksins. Þær boða báðar nýjan Framsóknaráratug. vísir/vilhelm Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar.
Nú fer hver að verða síðastur, að sannfæra Framsóknarmenn um hvor þessara tveggja er ákjósanlegri í að leiða flokkinn. Víst er að þar þarf að taka vel á því þessi elsti stjórnmálaflokkur landsins má muna sinn fífill fegurri. Kosningaúrslit voru flokknum ekki hagfelld 2024 en þá flaut Sigurður Ingi Jóhannsson formaður flokksins inn sem uppbótarþingmaður Suðurkjördæmis undir lok kosninganætur. Flokkurinn tapaði átta þingmönnum og er nú með fimm fulltrúa á löggjafarþinginu. Verðmætasköpun og heimilin skipta mestu Þær Lilja og Ingibjörg tókust á í Pallborðinu nú rétt í þessu en umræðum stýrði Margrét Helga Erlingsdóttir fréttamaður og það var ljóst strax í upphafi að þær voru ekki mættar til að láta hina vaða yfir sig. Umræður urðu afar fjörugar. Margrét Helga byrjaði á því að spyrja þær hver væri munurinn á þeim tveimur? Lilja sagðist hafa skýrar hugmyndir um endurreisn efnahagslífsins.vísir/Anton Brink Lilja sagði þær vissulega samherja en hún stæði fyrir röggsemi í efnahagsmálum, hún væri með skýra sýn í utanríkismálum, hún leggði áherslu á heimilin og atvinnulífið. „Ég tel að mikil verðmætasköpun skipti mestu fyrir Ísland og þetta vil ég sjá aftur á dagskrá,“ sagði Lilja. Hún taldi ríkisstjórnina hafa farið af sporinu og misst tök á verðbólgunni. „Verðbólga hækkaði þegar við fórum úr ríkisstjórn og ég hef sterka skoðun á því hvernig við byggjum upp flokkinn að nýju.“ Ekki síður Breiðholtsslagur en landsbyggð gegn höfuðborg Ingibjörg sagði að þær væru svolítið höfuðborg/landsbyggð en þetta væri ekki síður Breiðholtsslagur, því báðar væru þær þaðan. „Ég tengi vel saman höfuðborg og landsbyggð. Ég sé tækifæri þar, þar er verk að vinna.“ Ingibjörg Ólöf Isaksen var reif skjótt upp boxhanskana í leiðtogaslag þeirra Lilju Daggar Alferðsdóttur.vísir/anton brink Og svo reif Ingibjörg upp boxhanskana. Hún sagðist sitja á þingi, sem væri mikilvægt, hún stýrði þingflokknum og hefði verið á þingi í fjögur ár. Hún hefði heyrt ákall um breytingar. Lilja hefur verið varaformaður í tíu ár og það þýddi lítt að tala um grasrótarstarf korter í kosningar. Lilja sagði nauðsynlegt að fara í miklar breytingar og það væri ekki nokkuð sem hún gerði ein. „Ég held að það sé styrkur að formaðurinn sé ekki á þingi, það er svo mikil vinna framundan.“ Að Lilja tali gegn betri vitund Þær stöllur fóru um víðan völl og töluðu meðal annars um meint bolabrögð stuðningsmanna Lilju, sem Vísir hefur greint frá, aðildarviðræður að Evrópska efnahagnssvæðið, sem þær vilja báðar gjalda varhug við og ýmislegt fleira sem mætti verða til að endurreisa Framsókn til fyrri vegs og virðingar. Margrét Helga Erlingsdóttir stýrði umræðum af lipurð.vísir/anton brink Og þá kom Ingibjörg aftur að þessu atriði með að mikilvægt væri að formaðurinn sæti á þingi, að þetta mál yrði rætt á málstofu Alþingis. „Lilja talar gegn betri vitund,“ sagði Ingibjörg um að Lilja teldi það aukaatriði máls að formaðurinn sæti á þingi. Reynslumikil sem hún væri. Og það að rækta grasrótina sé viðvarandi verkefni. Lilja sagði að það gæti verið kostur í stöðunni, að formaðurinn væri frjáls í að sinna grasrótarstarfi og hefði til þess tíma. „Erum við ekki að ræða stjórnmál hér? Ég hugsa að ég nái fleiri eyrum hér en á þingi.“ Sjá má Pallborðið í heild sinni hér neðar:
Framsóknarflokkurinn Alþingi Pallborðið Flokksþing Framsóknar 2026 Tengdar fréttir Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Þegar hafa tvær konur lýst yfir áhuga á formennsku í Framsóknarflokknum. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar og fyrrverandi ráðherra, falast eftir formannsstólnum líkt og Ingibjörg Ísaksen, þingmaður flokksins. Samkvæmt heimildum Vísis gengur mikið á að tjaldabaki. 5. febrúar 2026 15:04 Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Ríflega 860 manns eru á kjörskrá fyrir 38. flokksþing Framsóknarflokksins sem fram fer í Reykjavík um helgina. Þar mun flokkurinn velja sér nýjan formann en ólíklegt þykir að allir sem eiga sæti muni mæta. Hörð barátta hefur verið um að tryggja kjörbréf, en samkvæmt heimildum fréttastofu eru dæmi um að stuðningsmenn formannsframbjóðenda hafi tryggt kjörbréf í gegnum flokksfélög til að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hins frambjóðandans geti stutt sína konu. Þá eru allmargir flokksþingsfulltrúar sagðir óákveðnir og ekki eins skýrar línur á milli fylkinga líkt og stundum hefur verið áður. 12. febrúar 2026 08:35 Konur í Framsókn sjá að sér Stjórn landssambandsins Konur í Framsókn segir að viðburður með Lilju Alfreðsdóttur hafi verið skipulagður áður en hún tilkynnti framboð sitt til formanns flokksins. Þá hafi Halla Hrund Logadóttir þingmaður upphaflega átt að vera frummælandi fundarins. 5. febrúar 2026 17:28 Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Innlent Fleiri fréttir Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Sjá meira
Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Þegar hafa tvær konur lýst yfir áhuga á formennsku í Framsóknarflokknum. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar og fyrrverandi ráðherra, falast eftir formannsstólnum líkt og Ingibjörg Ísaksen, þingmaður flokksins. Samkvæmt heimildum Vísis gengur mikið á að tjaldabaki. 5. febrúar 2026 15:04
Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Ríflega 860 manns eru á kjörskrá fyrir 38. flokksþing Framsóknarflokksins sem fram fer í Reykjavík um helgina. Þar mun flokkurinn velja sér nýjan formann en ólíklegt þykir að allir sem eiga sæti muni mæta. Hörð barátta hefur verið um að tryggja kjörbréf, en samkvæmt heimildum fréttastofu eru dæmi um að stuðningsmenn formannsframbjóðenda hafi tryggt kjörbréf í gegnum flokksfélög til að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hins frambjóðandans geti stutt sína konu. Þá eru allmargir flokksþingsfulltrúar sagðir óákveðnir og ekki eins skýrar línur á milli fylkinga líkt og stundum hefur verið áður. 12. febrúar 2026 08:35
Konur í Framsókn sjá að sér Stjórn landssambandsins Konur í Framsókn segir að viðburður með Lilju Alfreðsdóttur hafi verið skipulagður áður en hún tilkynnti framboð sitt til formanns flokksins. Þá hafi Halla Hrund Logadóttir þingmaður upphaflega átt að vera frummælandi fundarins. 5. febrúar 2026 17:28