Drífa Snædal snýr aftur Eiður Þór Árnason skrifar 9. febrúar 2026 18:14 Drífa Snædal er talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands. Vísir/Egill Drífa Snædal, talskona Stígamóta, ætlar að ganga aftur til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð (VG). Hún yfirgaf flokkinn með áberandi hætti árið 2017 vegna óánægju með þá fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins.
Drífa hafði þá verið skráð í flokkinn í átján ár og lengi verið áberandi. Var hún til að mynda framkvæmdastjóri VG um tíma og einnig varaþingmaður flokksins. Drífa greinir frá endurkomunni á Facebook-síðu sinni og segist með þessu vilja styðja Auði Alfífu Ketilsdóttur sem gefur kost á sér í annað sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. „Jæja, þar kom að því að ég ákvað að skrá mig aftur í VG og það af góðu tilefni. Það verður dásamlegt að búa í borg þar sem Fífa er minn fulltrúi við stjórnvölinn,“ skrifar Drífa á Facebook en í svari til fréttastofu segist hún sjálf ekki vera á leið í framboð. Yrði eins og að éta skít Þegar Drífa kvaddi flokkinn árið 2017 kvaðst hún vera bæði döpur og reið yfir því að VG ætti í formlegum stjórnarmyndunarviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn. Þá líkti hún mögulegri ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins við ofbeldissamband. Flokkarnir þrír áttu síðar eftir að hefja ríkisstjórnarsamstarf sitt og halda því áfram eftir þingkosningarnar 2021. „Við munum ekki breyta Sjálfstæðisflokknum. Innviðir hans eru spilltir og fullir kvenfyrirlitningar og að halda að við breytum honum er meðvirkni í hæsta máta,“ skrifaði Drífa í skilaboðum til flokksmanna í nóvember 2017. „Við og við vellur gröfturinn upp í formi frændhygli, innherjaviðskipta, skattaskjóla, auðvaldsdekurs, útlendingarandúðar eða skjaldborgar um ofbeldismenn. Þá verður VG í þeirri stöðu að verja samstarfsflokkinn og mörkin munu sífellt færast til í samstarfinu líkt og í ofbeldissambandi. Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjörtímabil, ef stjórnin endist svo lengi. Með ákvörðuninni um stjórnarviðræður setti flokkinn niður, trúverðugleikinn laskaðist verulega og vinstrið á Íslandi mun eiga erfitt uppdráttar næstu árin og áratugina.“ Henni þætti ómögulegt að taka þátt í þeirri vegferð sem flokkurinn stefndi í. „Ég get ekki kyngt því að við berum ábyrgð á því að koma Sjálfstæðisflokknum til valda eða séum til í að opna þann möguleika. Bara alls ekki,“ sagði Drífa. Stuðningur við VG hefur snarminnkað frá því að flokkurinn fór inn í umrætt ríkisstjórnarsamstarf með Framsókn og Sjálfstæðisflokknum eftir þingkosningarnar 2017. Í næstu kosningum árið 2021 lækkaði fylgi flokksins og árið 2024 þurrkaðist VG út af þingi eftir að Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sleit óvænt ríkisstjórnarsamstarfinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vinstri græn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Drífa hættir í VG og segir ríkisstjórnarsamstarfið við Sjálfstæðisflokk verða „eins og að éta skít“ Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins og fyrrverandi varaþingmaður Vinstri Grænna hefur sagt sig úr flokknum vegna ríkisstjórnarmyndunarviðræðna flokksins við Sjálfstæðisflokkinn. 16. nóvember 2017 14:25 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira
Drífa hættir í VG og segir ríkisstjórnarsamstarfið við Sjálfstæðisflokk verða „eins og að éta skít“ Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins og fyrrverandi varaþingmaður Vinstri Grænna hefur sagt sig úr flokknum vegna ríkisstjórnarmyndunarviðræðna flokksins við Sjálfstæðisflokkinn. 16. nóvember 2017 14:25