Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 17:30 Fyrirliðar Keflavíkur lyfta bikarnum í dag. Sara Rún Hinriksdóttir, Katla Rún Garðarsdóttir og Anna Ingunn Svansdóttir lyfta honum saman og liðsfélagar þeirra fagna. Vísir/Anton Keflavík stóð uppi sem bikarmeistari eftir sigur á Grindavík í úrslitaleik VÍS bikarsins í kvöld, 91-83. Leikurinn var jafn framan af en Keflvíkingar náðu undirtökunum í þriðja leikhluta og litu ekki um öxl eftir það. Leikurinn byrjaði af krafti hjá báðum liðum og var allt í járnum fyrstu sex mínútur fyrsta leikhluta. Þá steig Thelma Dís Ágústsdóttir fram og setti tvo þrista í röð og náðu Keflavík þá í kjölfarið að slíta sig frá Grindavík. Keflvíkingar héldu forystunni út leikhlutann sem endaði, 27-21. Forysta Keflavíkur hélt áfram inn í annan leikhluta og neyddist Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, þá að taka leikhlé. Eftir það komu Grindvíkingar af krafti til baka og tveimur mínútum síðar höfðu þær snúið leiknum sér í vil. Grindavík tókst að halda forystunni út leikhlutann og var staðan í hálfleik, 45-47 fyrir Grindavík. Keflavík tókst að jafna metin í fyrstu sókn sinni í þriðja leikhluta og skiptust liðin svo á að vera yfir. Sofie Tryggedsson setti svo niður tvo þrista í röð líkt og gerðist í fyrsta leikhluta og náðu Keflvíkingar þá góðum tökum á leiknum. Leikhlutanum lauk þá með tíu stiga forystu Keflavíkur, 70-60. Keflavík hélt um tíu stiga forskot sitt nánast allan fjórða leikhluta og virtist forystan aldrei vera í neinni alvöru hættu. Lokatölur 92-83 og Keflavík bikarmeistari 2026. Keflvíkingar tóku vel á móti bikarnum.Anton Brink Atvik leiksins Ekkert sérstakt atvik sem stendur upp úr. Spilamennska Keflavíkur í seinni hálfleik var þó frábær. Stjörnur og skúrkar Keishana Washington var hreint út sagt frábær fyrir lið Keflavíkur með 36 stig, 8 fráköst og 11 stoðsendingar. Farhiya Abdi var þá frábær í liði Grindavíkur en hún var með 29 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar. Stemning og umgjörð Það var troðfull höll og góð stemning frá fyrstu mínútu. Stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra og umgjörðin var til fyrirmyndar. Bikarmeistararnir fögnuðu innilega með stuðningsmönnum sínum.Anton Brink Dómarar Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson og Jakob Árni Ísleifsson stóðu vaktina á parketinu í Smáranum í kvöld. Lítið um vafamál og nokkuð auðveld vakt býst ég við. Viðtöl Keishana Washington: Hógvær MVP dagsins Hörður Axel Vilhjálmsson: „Stoltur af kraftinum og eljunni sem við sýndum í kvöld“ Þorleifur Ólafsson: „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ VÍS-bikarinn Keflavík ÍF UMF Grindavík
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti