Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Sindri Sverrisson skrifar 6. febrúar 2026 07:00 Kjartan Atli Kjartansson ræddi við Casemiro sem er á sinni fjórðu og síðustu leiktíð með Manchester United. Skjáskot/Sýn Sport Brasilíumaðurinn Casemiro er á kveðjutímabili sínu hjá Manchester United. Hann ræddi við Kjartan Atla Kjartansson um nýja stjórann sinn, dásamaði Kobbie Mainoo og Bruno Fernandes, og veitti innsýn í það hvernig er að spila fyrir 200 milljóna boltaóða þjóð á HM.
Casemiro og félagar spila mikilvægan leik við Tottenham í hádeginu á morgun þar sem sigur kæmi þeim þét á eftir Aston Villa og Manchester City, og níu stigum á eftir toppliði Arsenal. Viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan. Klippa: Casemiro í viðtali við Sýn Sport Casemiro er á sínu fjórða tímabili með United. Hann hefur ekki verið eins sigursæll með liðinu eins og þegar hann rakaði inn titlum með Real Madrid en þó unnið bæði enska bikarinn og deildabikarinn, á stormasömum tímum í sögu United. Dýrmætt að Carrick viti allt um félagið Nú er hann kominn með fjórða aðalþjálfarann á fjórum árum hjá United, Michael Carrick, sem byrjað hefur frábærlega með þremur sigrum í röð. „Það er auðvitað mikill heiður að vinna með svona manni sem að vann allt sem hægt var að vinna á sínum ferli, og er goðsögn hjá félaginu. Hann er auðvitað fyrrverandi leikmaður sem getur miðlað af reynslu sinni og skilur hvernig hlutirnir virka. Fyrir mér er mikilvægast að hann er fyrrverandi leikmaður félagsins og þekkir allt hér. Hann veit allt um hvað Manchester United snýst.“ Casemiro á sinn þátt í velgengni Manchester United í síðustu leikjum.GEtty/Carl REcine „Það er vissulega skammur tími liðinn og hann [Carrick] er að reyna að komast inn í hlutina. Það er annar mikilvægur leikur handan við hornið en fyrir mér er mikilvægast að hann er öllum hnútum kunnugur hérna. Hann veit nú þegar hvernig félagið virkar, og hvernig leikmenn og stuðningsmenn vilja að liðið spili. Svo það er ekkert sem kemur honum á óvart og hann þekkir líka deildina afar vel,“ sagði Casemiro. Bruno sá mikilvægasti Casemiro hefur spilað mikið með Bruno Fernandes á miðjunni hjá United. Þeir tala sama tungumálið og Brasilíumaðurinn nýtur þess að spila með þessum portúgalska liðsfélaga sem hefur verið sérstaklega duglegur að leggja upp mörk að undanförnu: „Það er ekkert nýtt í þessu því Bruno hefur verið að gera þetta stöðugt í gegnum árin. Frá því að hann kom til United hefur hann verið einn áhrifaríkasti leikmaður liðsins. Fyrir mér er hann enn mikilvægasti leikmaðurinn, sérstaklega í sóknarleik liðsins. Við verðum að njóta þess á meðan við höfum hann, nýta hann sem best og færa honum boltann í sem bestri stöðu því hann er stórkostlegur leikmaður. Og ég held að tölurnar tali sínu máli því hann ber liðið áfram, hjálpar öðrum og er alltaf til staðar. Við eigum að njóta núna því það er erfitt að fá leikmenn í svona gæðaflokki sem hjálpa okkur og gefa sig alla fyrir liðið,“ sagði Casemiro. Kobbie Mainoo gæti spilað stórt hlutverk hjá Manchester United næstu tíu árin, að sögn Casemiro.Getty/Robbie Jay Barratt Kobbie Mainoo hefur einnig spilað með honum á miðjunni að undanförnu, eftir að hafa verið aftarlega í goggunarröðinni hjá Rúben Amorim. Megi ekki setja of mikla pressu á Mainoo „Það kemur ekki á óvart að Kobbie eigi góðan leik því þegar allt kemur til alls þá hefur hann þegar sýnt og sannað að hann er frábær leikmaður. En við megum ekki setja of mikla pressu á hann því hann er ungur leikmaður og það er eðlilegt að hann eigi hæðir og lægðir. En hann hefur þegar sýnt að hann er toppleikmaður, ekki bara hér heldur með enska landsliðinu. Við verðum að nýta sem best svona leikmenn, með svona gæði, en á sama tíma að vernda hann. Þegar menn eru hjá United þá er alltaf pressa á öllum, það er ekkert nýtt, og sérstaklega fyrir hann sem hefur sýnt heiminum hvað hann getur. En ég held að við megum ekki setja of mikla pressu á hann og verðum að hjálpa honum að halda ró og spila sinn leik, sinn fótbolta, því hann er leikmaður sem Manchester United gæti átt í mörg ár. Þeir eru hér með frábæran leikmann til næstu tíu ára,“ sagði Casemiro. Casemiro nýtur þess að klæðast landsliðstreyjunni og hlakkar til HM næsta sumar.Getty/Ryan Pierse Þegar tímabilinu lýkur má ætla að risastór stund bíði miðjumannsins, sjálft heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Þar bíður titill sem Casemiro vantar í safnið. „Fótbolti er allt sem við eigum í Brasilíu. Þetta er ástríða sem hreyfir við allri þjóðinni. Þetta er mikilvægasta íþróttin og allir gera hvað þeir geta til að sjá leiki, spila leiki. Þarna er mesta ástríðan. Og varðandi HM þá er það keppni sem setur þjóðfélagið á hliðina. Það búa allir til tíma til þess að sjá landsliðið spila. Við erum 200 milljóna manna þjóð og allt stoppar þegar það er leikur á HM.“
Enski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Sjá meira