Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. janúar 2026 08:35 Rubio var tvísaga varðandi mögulega hernaðaríhlutun Bandaríkjamanna í Venesúela. Í bréfi til nefndarinnar sagði hann Bandaríkjastjórn reiðubúna til að grípa til aðgerða til að knýja fram vilja sinn en fyrir nefndinni sagði hann engar áætlanir uppi um beitingu hervalds. Getty/Chip Somodevilla Allar tekjur af sölu olíu frá Venesúela munu rata í sjóð í umsjá Katar. Þá munu stjórnvöld í Venesúela hafa samþykkt að leggja fram mánaðarlega fjárhagsáætlun, sem verður fjármögnuð með úthlutun úr sjóðnum. Fjármögnunin verður háð samþykki Bandaríkjastjórnar.
Frá þessu greindi utanríkisráðherrann Marco Rubio fyrir utanríkismálanefnd öldungadeild Bandaríkjaþings í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem Rubio mætti fyrir nefndina frá því að Bandaríkjamenn handsömuðu Nicolás Maduro, forseta Venesúela, þann 3. janúar síðastliðinn. Nefndarmenn úr röðum Demókrata virtust hafa ýmsar efasemdir um fyrirkomulagið sem Rubio lýsti, ekki síst þeirri ákvörðun að fela Katar umsjón olíusjóðsins. Sögðu þeir það mögulega ekki standast lög. Rubio viðurkenndi að fyrirkomulagið væri óvenjulegt en sagði það meðal annars nauðsynlegt til að hindra að fyrirtæki sem teldu sig eiga inni hjá Venesúela gætu gert kröfur í sjóðinn. Demókratarnir bentu einnig á að það virtist ekkert koma í veg fyrir að Delcy Rodríguez, sitjandi forseti, og ríkisstjórn hennar vörðu fjármununum í að styrkja stöðu sína, til að mynda með greiðslum til bardagahópa og eiturlyfjabaróna. Þá gat Rubio ekki svarað því hvenær eða hreinlega hvort Bandaríkjastjórn hygðist beita sér fyrir stjórnarskiptum í landinu. Rubio lagði mikla áherslu á að stjórnvöld í Venesúela hefðu skuldbundið sig til að opna landið fyrir bandarískum olíufyrirtækjum og nota gróðan til þess að kaupa vörur og þjónust af Bandaríkjunum. „Þið eruð að taka olíuna þeirra með hótunum um ofbeldi,“ sagði Demókratinn Christopher S. Murphy. „Þið eruð að ákveða hvernig og í hvað fjármununum er varið, af þjóð sem telur 30 milljónir einstaklinga. Ég held að mörg okkar telji að þetta geti ekki annað en farið illa.“
Bandaríkin Katar Venesúela Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira