Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. janúar 2026 14:48 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. Vísir/Anton Brink Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir val þáttastjórnanda Vikuloka á Rás 1. Hún hótar að hætta að greiða útvarpsgjaldið svari þau ekki fyrir af hverju henni sé aldrei boðið.
Í færslu á Facebook lýsir Sólveig Anna því hvernig hún hafi verið formaður næst stærsta verkalýðsfélags landsins frá árinu 2018, að undanskildum örfáum mánuðum 2021-22. „Ég hef leitt fjölmargar verkfallsaðgerðir og haldið næstum ótal atkvæðagreiðslur um vinnustöðvanir - sem allar hafa verið samþykktar af félagsfólki með yfirgnæfnadi meirihluta greiddra atkvæða. Ég hef oft varist fyrir dómstólum fyrir hönd félagsins og oft stefnt þeim sem stjórn hefur talið rétt að stefna,“ segir Sólveig Anna. Frá því að hún tók við embætti formanns árið 2018 hafi henni einu sinni verið boðið að koma í útvarpsþáttinn Vikulok sem er á Rás 1. „Frá því að núverandi formaður VR tók við formennsku fyrir tæpu ári hefur henni verið boðið um það bil 270 sinnum, nú síðast í gær, til að ræðakjarasamninga sem ég gerði en ekki hún. Og nú, á þessari dimmu helgi á glænýju ári, er nóg komið - og ég krefst svara,“ segir Sólveig. Hún gefur forsvarsmönnum Vikuloka sex valmöguleika til að velja um sem ástæða af hverju henni hafi ekki verið boðið oftar. „Er mér ekki boðið í Vikulokin afþví A. ég er bara með grunnskólapróf, B. ég er átakasækinn aðgerðasinni, C. ég er ekki vók, D. ég er ekki nógu dömuleg, E. þeim finnst ég hundleiðinleg t***a, F. þeim finnst ég heimskt fífl sem veit ekki neitt, eða G. er ég formaður í félagi verkafólks þar sem meira en heilmingur er af erlendu bergi brotinn en ekki í félagi íslenskrar millistéttar? Eða allt af þessu?“ Sólveig Anna krefst þess að fá skýr svör innan tveggja sólarhringa, annars muni hún neita að borga „þetta helvítis útvarpsgjald“ og fer í mál. „Ég hef sýnt mikið langlundargerð, bælt niður gildi mín og persónuleika vegna þessarar einbeittu og grófu móðgunnar, en ég fæ ei lengur bælt.“ Samkvæmt lauslegri athugun blaðamanns hefur Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, tvisvar sinnum verið gestur í Vikulokum á síðasta ári.
Kjaramál Ríkisútvarpið Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira