Þrjár vikur í fyrsta gjalddaga og 15% eiga eftir að skrá kílómetrastöðu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. janúar 2026 09:16 Stjórnvöld hvetja þá sem enn eiga eftir að skrá kílómetrastöðu ökutækja sinna til að gera það sem fyrst. Vísir/Anton Brink Aðeins á eftir að skrá kílómetrastöðu um 15% þeirra ökutækja á landinu sem ný lög um kílómetragjald ná yfir. Skráning kílómetrastöðu vegna gjaldsins er sögð hafa gengið vel, en þegar hefur staðan verið skráð vegna 85% af þeim ríflega 300 þúsund ökutækjum sem lögin ná yfir. Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjaldsins rennur upp eftir tæpar þrjár vikur.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins í dag er fullyrt að með lögum um kílómetragjald sem tóku gildi um áramótin verði gjaldtaka „sanngjarnari“ og hún endurspegli betur notkun ökutækja á vegakerfinu. Um leið sé skapaður „stöðugri og fyrirsjáanlegri tekjustofn“ til ríkisins af umferðinni til framtíðar líkt og það er orðað í tilkynningunni. „Við þökkum fólkinu í landinu fyrir að hafa tekið vel á móti þessari mikilvægu kerfisbreytingu sem mun gera okkur sem samfélag betur í stakk búin til að fjármagna örugga og greiða vegi um allt land,“ er haft eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningunni. „Þetta er stór kerfisbreyting og því eðlilegt að það vakni margar spurningar. Við höfum því lagt okkur fram við að koma upplýsingum á framfæri og erum reiðubúin til að svara spurningum, veita aðstoð og bregðast við athugasemdum.“ Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.Vísir/Ívar Fannar Þá er í tilkynningunni útskýrt nánar hvers vegna mikilvægt sé að skrá kílómetrastöðu, en lagt er upp með að gjaldið verði greitt mánaðarlega frá og með næstu mánaðamótum en fyrsti gjalddagi kílómetragjaldsins er þann 1. febrúar næstkomandi. Skatturinn reiknar gjaldið út frá meðalakstri samkvæmt síðustu tveimur skráningum kílómetrastöðu á þeim tíma sem sami aðili, hvort sem það er einstaklingur eða fyrirtæki, hefur haft ökutækið til umráða. Ef skráning liggur ekki fyrir áætlar Skatturinn hins vegar meðalaksturinn og leggur út frá því á bráðabirgðagreiðslu. Þá mælast stjórnvöld sérstaklega til þess að kílómetrastaða sé skráð fyrir 20. janúar ef ökutæki hefur verið keypt nýlega og aðeins liggur fyrir ein akstursskráning, ef ökutækið er nýlegt og hefur því ekki þurft að fara í árlega aðalskoðun, og ef notkun ökutækisins hefur breyst með slíkum hætti að hún endurspegli ekki núverandi notkun. Nánari upplýsingar og um hvar má nálgast leiðbeiningar er að finna í tilkynningu stjórnarráðsins.
Kílómetragjald Bílar Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Sjá meira