Farsæld barna kemur ekki af sjálfu sér Birgir Örn Guðjónsson skrifar 11. janúar 2026 15:00 Málefni ungmenna í vanda hafa verið mikið í umræðunni síðustu mánuði og kominn tími til. Síðustu áratugi hef ég lagt mikið á mig í þessum málaflokki og samhliða reynt hvað ég get að halda umræðunni á lofti. Það hefur ýmislegt verið gert en umræðan virðist alltaf koma í bylgjum. Svo er fólk alltaf rosa hissa á því að við séum ekki á betri stað. Það er kominn tími til að málefni barna og ungmenna verði ekki bara tekin upp á tyllidögum til þess að geta hneykslast í sameiningu yfir því sem ekki er gert. Það er kominn tími á raunverulegt viðbragð og stöðugleika í fyrirbyggjandi aðgerðum. Þessi mál skipta samfélagið allt máli og við berum öll ábyrgð. Það eru samt ákveðnir aðilar eða stofnanir sem hafa meiri ábyrgð og eru í stöðu til þess að taka á málunum. Sveitafélögin bera mjög mikla ábyrgð. Undir stjórn þeirra eru meðal annars leikskólarnir, grunnskólarnir, félagsmiðstöðvarnar, félagsþjónustan, NPA þjónusta og barnavernd. Þetta er gífurleg ábyrgð en um leið felast í þeim ótrúleg tækifæri til þess að hafa raunveruleg og mótandi áhrif. Árið 2021 voru innleidd svokölluð farsældarlög barna. Það var mjög jákvætt skref því við getum algjörlega unnið út frá þeim til þess að gera stöðuna betri. En það gerist ekkert að sjálfu sér og það þarf sameiginlegt átak í að gera betur. Það er ákveðinn þráður í farsældarlögunum um að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Á mismunandi stöðum er ólík yfirsýn eða sérþekkingu og samvinna og samtal er lykillinn að árangri. Ef samvinnan á sér ekki stað týnast einstaklingarnir eða þá að þeir falla milli kerfa. Það er hægt að stoppa í þessi göt og nauðsynlegt að gera það. Þar sem það er skólaskylda í landinu þá er mjög stórt sóknarfæri inni í skólunum. Þar eru mestu líkurnar á að ná tengingunni. Það er hins vegar deginum ljósara að það er ekki hægt að leggja alla þá vinnu á kennarana sem þarf til. Það er ekki hægt að hlaða endalaust fleiri verkefnum og aukinni ábyrgð á sömu stéttina. Þess vegna verðum við að fá inn sérfræðinga á fleiri sviðum en kennslu inn í grunnskólana. Líka til þess að kennarar geti sinnt sinni vinnu á fullnægjandi hátt. Svokallaður tengiliður farsældar er gífurlega mikilvægt starf í grunnskólunum. Það starf á ekki að vera eitthvað sem stjórnendur skólanna taka að sér meðfram öðrum störfum. Í einhverjum tilfellum geta kannski námsráðgjafar tekið það að sér en þeir hafa líka nóg annað á sinni könnu. Í sífellt flóknara samfélagi mun starf tengiliðs farsældar aðeins verða mikilvægara. Tengiliðir þurfa ekki að bíða eftir að foreldrar séu komnir í öngstræti. Foreldrar eru líka í misjafnri stöðu til þess að leita aðstoðar. Tengiliðir geta stigið inn þegar þeir sjálfir, kennarar eða aðrir sjá að aðstoðar sé þörf. Í stærri sveitafélögum, eins og Kópavogi, eru stórir og fjölbreyttir skólar. Kennarar eða skólastjórnendur eiga fullt í fangi með að sinna sínu starfi. Við getum ekki ætlast til að þeir séu líka sálfræðingar, félagsfræðingar, þroskaþjálfar eða atferlisfræðingar. Það er löngu komið nóg af því að eyrinn sé sparaður en krónunni kastað í málefnum barna og ungmenna. Kostnaðurinn við að sinna þessu ekki eins vel og við getum er alltaf miklu meiri til lengri tíma litið. Það er svo líka kostnaður að kennarar fari í veikindaleyfi eða brenni út í starfi. Við getum og verðum að gera betur. Þegar kemur að svona mikilvægum málaflokki er ekki boðlegt að bíða eftir að einhver annar taki við vandamálinu og við megum ekki festast í einhverri störukeppni við ríkið varðandi verkaskiptingu eða kostnað. Sveitafélögin bera mikla ábyrgð og eru í kjör stöðu til að axla þá ábyrgð. Við viljum öfluga skóla með góðri kennslu og réttri aðstoð fyrir þau sem þurfa. Þegar vísað er í aðstoð utan veggja skólans er nauðsynlegt að leiðin sé skýr og greið, óháð efnahag fjölskyldna. Við verðum að horfa út fyrir boxið og þora. Breytum þessu. Höfundur er deildarstjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu og sækist eftir oddvitasæti á lista Viðreisnar í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Barnavernd Viðreisn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Halldór 14.03.2026 Agnar Már Másson Halldór Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Hvernig verjum við Ísland? Finnur Beck skrifar Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson skrifar Sjá meira
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun