Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar 15. október 2026 07:30 Öryggi barna í umferðinni er meðal þess sem fékk mig til að bjóða mig fram í borginni í vor. Við í Viðreisn ætlum að gera Reykjavík að betri borg fyrir börn og mikilvægur hluti af því er að gera umferðaröryggi að forgangsmáli. Í gær lögðum við í umhverfis- og skipulagsráði fram tillögu þess efnis að sviðið taki saman gögn sem eru nú þegar til á hinum ýmsu stöðum til að kortleggja hvar hættan fyrir börn í umferðinni við skóla og leikskóla er mest. Við óskuðum líka eftir því að kvartanir og ábendingar skólasamfélagsins væru teknar með í þessa vinnu. Það er nefnilega einstaklega mikilvægt að foreldrar geti treyst umferðinni fyrir börnunum sínum, annars aukast líkur á skutli og umferðin eykst enn meir. Ákall úr fleiri áttum Í gær birtu Samtök um bíllausan lífsstíl líka mikilvæga grein hér á Vísi sem fjallar um slys á börnum í umferðinni. Greinarhöfundur kallar þar eftir því að fólk láti heyra meira í sér þegar keyrt er á börn og ég gæti ekki verið meira sammála. Við getum ekki búið í borg þar sem það þykir eðlilegur fylgifiskur bílaumferðar að börn verði fyrir bíl. Í greininni er talað um gatnamót í mínu hverfi. Þar stóð ég við gangbraut þrjá vetur í röð, með fullt af öðrum foreldrum, til að vera viss um að börnin í hverfinu kæmust örugg í skólann. Eitthvað sem ætti að vera sjálfsagt að mínu mati. Í því tilfelli hafði þrýstingur skólasamfélagsins tilætluð áhrif og Reykjavíkurborg er nú byrjuð að laga tvær gangbrautir á þeim stað. Það er samt bara byrjunin því víða er pottur brotinn. Fyrsta skrefið: skólarnir Á þessu kjörtímabili viljum við horfa sérstaklega á svæði í kringum skóla og leikskóla og með því að kalla eftir gögnum viljum við geta mælt árangurinn. Ábyrgð okkar sem stýrum borginni er mikil en betri (umferðar) borg fyrir börn er samfélagslegt verkefni og við verðum öll að hjálpast að. Reykjavík axlar sína ábyrgð með því að vanda til verka þegar við hönnum götur, stíga og gangbrautir eða ákvörðum umferðarhraða. Við sem erum með bílpróf verðum svo líka að axla ábyrgð á því hvernig við keyrum. Við verðum að hætta að horfa ofan í símana og einbeita okkur að akstrinum. Keyra hægar og muna að hámarkshraði er ekki „eini hraðinn sem má keyra þessa götu á“. Stundum kalla aðstæður eftir því að við keyrum hægar. Sérstaklega inni í hverfum þar sem börn eru alltaf að ferðast um og í myrkri á morgnanna þegar börn eru á leið til skóla. Það er aldrei börnum um að kenna Umfram allt þá getum við ekki kennt börnum um þegar illa fer. Þau eru að taka sín fyrstu skref sem gangandi og hjólandi vegfarendur. Við getum vissulega tryggt að þau séu vel merkt með endurskinsmerkjum og farið yfir umferðarreglurnar með þeim. En ef umhverfið er illa hannað og bílstjórar sýna þeim ekki tillit, einbeita sér ekki að akstrinum eða keyra alltof hratt þá eiga þau ekki séns og borgin okkar er þá hreinlega ekki nógu öruggur staður fyrir yngstu íbúa borgarinnar. Höfundur er varaborgarfulltrúi Viðreisnar og situr í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Margrét Rós Sigurjónsdóttir Samgöngumál Reykjavík Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun