Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar 15. október 2026 11:48 Í tilefni þess að í vikunni sem líður er árleg og alþjóðleg vitundarvakning um þráhyggju- og áráttuvanda, langar mig að skrifa nokkur orð um eina birtingarmynd hans – töfratrú (magical thinking). Hver hefur ekki lent í því að segja „7 - 9 - 13” til að passa að eitthvað slæmt gerist ekki. Banka í við eða passa sig að ganga ekki undir stiga? Einhver annar gæti kannast við að taka alltaf lukkuhálsmenið sitt með í flug, eiga sínar happatölur eða fara alltaf í sömu sokka fyrir mikilvægan leik. Ég tala nú ekki um svörtu kettina. Þessi eðlilegi partur af mannlegu eðli kallast hjátrú(superstition) – að trúa einhverju sem byggir ekki á röklegum tengslum við veruleikann heldur hugmyndum um örlög, galdra, hið yfirnáttúrulega eða ótta við hið óþekkta. Þessi eiginleiki er í eðli sínu ekki slæmur, er partur af okkar menningu og getur í hóflegu magni veitt okkur öryggi og stjórn í annars stjórnlausum heimi – og jafnvel verið smá skemmtilegur. Þegar hjátrúin kemst á stera Í einhverjum tilvikum verður hjátrúin þó að vandamáli. Hún byrjar að umlykja allt sem við gerum í daglegu lífi, hóta okkur öllu illu ef við hlýðum henni ekki og valda okkur miklum kvíða, samviskubiti og skömm ef við fylgjum ekki hennar reglum. Þegar þetta verður raunin byrjum við að tala um töfratrú („magical thinking”) – sem getur verið stór partur af og jafnvel rauður þráður í mörgum kvíðavandamálum og þá sérstaklega þráhyggju og áráttu. Þetta er sérstaklega algengt hjá þeim hópi sem býr yfir aðeins meiri og ósveigjanlegri ábyrgðarkennd, réttlætiskennd og sanmviskusemi. Semsagt ofurgóða fólkinu! Dæmi um það hvernig töfratrú birtist í þráhyggjum geta verið mýmörg en meðal annars þessi: ef ég sé pabba fyrir mér deyja í bílslysi þá mun hann deyja! ef ég fæ slæma hugsun þegar ég opna hurðina mun eitthvað slæmt gerast í dag ef ég geri ekki hluti í réttri röð á morgnana verður dagurinn slæmur ef ég fæ hugsun um að skaða börnin mín á einhvern hátt þýðir það að ég sé vondur faðir ef ég hugsa um vonda manneskju þá breytist ég í vonda manneskju ef ég slekk ekki 5x á ljósinu inni í herbergi munu börnin mín deyja ef ég klæðist ekki ákveðnum fötum mun eitthvað hræðilegt gerast ef ég fæ ,,ranga tilfinningu” gerist eitthvað slæmt fyrir fólk sem ég elska Með öðrum orðum þá sannfærir þráhyggjan fólk um eftirfarandi; Ef þú hugsar eitthvað slæmt, þá gerist það.Ef þú hugsar eitthvað slæmt, þá þýðir það eitthvað slæmt um þig. Ef þú færð „ ranga” tilfinningu, þá gerist eitthvað slæmt. Ef þú framkvæmir ekki ákveðna hegðun, þá gerist eitthvað slæmt. Viðbrögðin viðhalda vandanum Þá er heldur betur skiljanlegt að fólk byrji að bregðast við með alls konar leiðum ef þetta eru skilaboðin frá þráhyggjunni. Dæmi um slík viðbrögð, eða öllu heldur áráttur, geta verið mjög margar - en alltaf með sama markmið: að núlla út hugsanir, tilfinningar og möguleg skaðleg áhrif þeirra. Til dæmis með því að forðast að hugsa ákveðnar hugsanir, skipta þeim út fyrir aðrar jákvæðari, fara með möntrur ef hugsanir birtast, þurfa að endurtaka ákveðna hluti aftur og aftur, gera hluti á ákveðinn hátt eða „just right”, forðast aðstæður sem ræsa hugsun, laga „ranga” tilfinningu og svo lengi mætti telja. Þessar áráttur geta oft tekið marga klukkutíma á dag, rænt fólki tíma og orku, valdið mikilli vanlíðan og röskun á daglegu lífi. Þessi sami hópur veit oftast að þetta eru líklega yfirdrifin eða óþörf viðbrögð – en óttinn um „hvað ef ..“ hefur betur. Better safe than sorry! En vandinn verður sá að rétt eins og lítið barn sem lærir að hræðast hunda ef það verður endurtekið vitni af því að foreldri eða aðstandandi forðast eða passar sig í kringum hunda – þá lærir kvíðaviðbragðið af hegðun okkar. Ef ég hegða mér eins og eitthvað sé hættulegt, þá lærir kvíðakerfið mitt að trúa því og ræsist oftar í svipuðum aðstæðum í framtíðinni. Ég er í raun að kenna kvíðakerfinu mínu að hugsanir séu hættulegar og að þeim beri að taka alvarlega og kvíðakerfið er alltaf sami samviskusami nemandinn sem er viljugur til að hlusta, læra og aðlagast. Það er í raun ekki við kvíðakerfið í sjálfu sér að sakast (ekkert frekar en nemanda í skóla) – það ræsist bara vegna þess að við erum að kenna því óhjálplegt námsefni (hugsanir eru hættulegar!). Hvað er til ráðs? Ef einhver er fastur í einhverjum svipuðum vítahring og er lýst hér að ofan, skiptir fræðsla fyrir það fyrsta miklu máli. Hugsanir eru ekki hættulegar og verða það aldrei. Og já, sömuleiðis þessar skrítnu, óþægilegu og raunverulegu hugsanir, ímyndir eða hvatir. Við fáum þær öll og þær eru partur af því að vera manneskja - en þær hafa engan töframátt og valda engum skaða, jafnvel óáreittar! Ef svo væri raunin værum við öll vondar, hræðilegar og hættulegar manneskjur. Ég geng svo langt að segja að við værum líklega útdauð sem tegund. Ég væri í öllu falli orðinn atvinnulaus og löngu kærður til Landlæknisembættis sökum allra þeirra hluta sem ég hef aðstoðað fólk með að gera til að forvitnast um það hversu hættulegar eða mikilvægar hugsanir eru (so far, so good!). Þetta virkar líka í hina áttina. Við getum ekki hugsað okkur í átt að eða „manifesterað” jákvæðar breytingar með því einu að hugsa nógu anskoti mikið um þær eða sjá þær endurtekið fyrir okkur (sbr. bókin The Secret). Ef það væri raunin værum við öll milljónamæringar. Það þýðir samt ekki að slæmir hlutir geti ekki gerst á svipuðum tíma og við fáum erfiðar hugsanir – en það hefur ekkert að gera með tengslin þar á milli. Fylgnisamband er ekki orsakasamband. Að einhver lendi í bílslysi á sama tíma og ég fæ mér sopa af kaffinu mínu þýðir ekki að hið síðarnefnda hafi orsakað hið fyrrnefnda.En sem betur fer snýst vandinn ekki um hugsanir okkar – ekkert frekar en hundafælni snýst um hunda. Vandinn snýst um það hvernig við túlkum þessar hugsanir, hversu alvarlega við tökum þeim og hversu mikið vægi við höfum lært að gefa þeim. Fyrir vikið höfum við brugðist við þeim á alls konar vegu sem ýtir enn frekar undir vægið og alvarleikann - og kvíðakerfið ræsist alltaf meira og meira þegar svipaðar hugsanir koma upp. En rétt eins og það er hægt að kenna kvíðakerfinu að eitthvað sé hættulegt þá er líka hægt að kenna því hið gagnstæða. Kvíðakerfið okkar, eins og taugakerfið almennt, er aðlögunarhæft og hreyfist og beygist út frá þeim skilaboðum sem það fær. Við getum því sent kvíðakerfinu okkar ný skilaboð um eðli hugsana og þá sérstaklega hversu ómerkilegar og skaðlausar þær eru og árangursríkasta leiðin til þess er í gegnum breytingar á hegðun. Hvernig þá? Fyrir það fyrsta með því að leyfa þessum hugsunum að koma – án þess að bregðast við þeim. Án þess að núlla þær út, forðast þær ekki eða fara í áráttur og hreinlega halda bara áfram. Hundsa þær. Gefa skít í þær. Svo er jafnvel hægt að ganga lengra, gera grín að þeim og svara með stælum („þá bara gerist það” eða „so what?”) eða óvissu („kannski gerist það - kannski ekki”). Þráhyggjan hatar það! Svo er hægt að taka þetta skrefinu enn lengra með því að byrja að sækja í alls konar aðstæður (í þeim skrefum sem maður treystir sér) sem þráhyggjan vill alls ekki að maður leiti í. Í grófum dráttum að gera öfugt við það sem þráhyggjan vill! Það væri til að mynda hægt með því að: ganga inn um dyragætt og hugsa ,,ranga” hugsun á meðan fara í flug án þess að vera með happahálsmenið mitt og viljandi hugsa um að ég hrapi klæðast viljandi einhverju sem veitir mér „ranga” tilfinningu og ekki laga hana skrifa niður endurtekið að eitthvað slæmt komi fyrir einhvern sem ég elska að „jinxa” á einhvern hátt, til dæmis með því að segja „vonandi fell ég á prófinu” eða ekki segja „ég elska þig” við makann áður en ég kveð hann gera ákveðna hluti í „rangri röð hugsa um slæma manneskju og „reyna” að breytast í hana í huganum Þetta er allt gert án þess að fara í áráttur á meðan og eftir á – með það að markmiði að draga úr mætti og mikilvægi hugsana og tilfinninga og sömuleiðis til þess að öðlast betur traust á sjálfum mér og þeirri manneskju sem ég hef að geyma. Að kannski sé ég bara ekki vond eða hættuleg manneskja. Að kannski muni ég ekki missa stjórn á mér. Að kannski muni ég ekki breytast í vonda manneskju. Að kannski muni hugsanir mínar ekki drepa fjölskyldu mína. Taktu samt eftir því að markmiðið er ekki að hætta að fá þessar hugsanir. Þær munu alltaf verða til staðar hjá mér, þér og næsta manni. Öllu heldur er markmiðið að öðlast nýtt samband við hugsanir mínar og tilfinningar, að læra að verða meira sama um þær og að geta lifað því lífi sem ég vil lifa þrátt fyrir þær. Í lokin vil ég taka fram að í mörgum tilvikum hefur þráhyggjan hreiðrað það vel um sig að það verður hægara sagt að brjótast út úr viðjum hennar eins síns liðs, og þær leiðir sem ég tala um hér að ofan eru í flestum tilvikum partur af markvissri meðferð hjá meðferðaraðila sem sérhæfir sig í meðferð við OCD. Ef þú upplifir að þráhyggja- og áráttuvandi sé truflandi afl í lífinu þínu sem þér finnst þú ekki ráða við sjálf/ur, hvet ég þig til þess að leita þér aðstoðar hjá slíkum aðila. Það eru til mjög árangursríkar og gagnreyndar meðferðir við þessum vanda, þá sérstaklega hugræn atferlismeðferð og berskjöldunarmeðferð, þar sem fólk lærir að skilja vítahringinn sem OCD er og hvernig það getur brotist út úr honum. En fyrsta skrefið getur jafnframt verið það mikilvægasta – og það er að leita sér aðstoðar. Höfundur er sálfræðingur á Kvíðaklíníkinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Sjá meira
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun