Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 29. desember 2025 11:43 Frá vettvangi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þá var vinnu á vettvangi lokið og búið að setja gult lögreglulímband á bílflökin. Vísir Fjórir erlendir ferðamenn voru fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Reykjavík eftir árekstur tveggja bifreiða á Suðurlandi í gær. Tildrög slyssins eru til rannsóknar.
Það var um kvöldmatarleytið í gær sem tilkynning barst um bílslys við Fagurhólsmýri á Suðurlandi að sögn Jóns Gunnars Þórhallssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi. Bærinn er um 25 kílómetra austur af þjóðgarðinum Skaftafelli. „Þarna varð árekstur tveggja bifreiða og í þessum bifreiðum voru fjórir aðilar sem slösuðust. Þetta var um kvöldmatarleytið í gærkvöldi og þetta er Öræfunum. Það voru fluttir þessir aðilar allir úr bílunum með þyrlum á Landspítalann til aðhlynningar,“ segir Jón Gunnar. Aðspurður segir Jón Gunnar að erlendir ferðamenn hafi verið í báðum bílunum. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni voru tvær þyrlur gæslunnar sendar af stað til að sækja hina slösuðu. Þrír voru fluttir með annarri þyrlunni frá vettvangi og einn með hinni þyrlunni frá Kirkjubæjarklaustri þangað sem hann var fluttur með sjúkrabíl til móts við þyrluna. Vegna slæms skyggnis var þyrlunum ekki lent við Borgarspítalann heldur á Reykjavíkurflugvelli þaðan sem fólkið var flutt með sjúkrabíl á Landspítalann. Jón Gunnar kveðst ekki hafa nákvæmar upplýsingar um hversu alvarlega fólkið er slasað. „En þetta voru talsverðir áverkar sem krafðist innlagnar hjá þeim,“ segir Jón Gunnar. Tildrög slyssins eru nú til rannsóknar og stendur sú vinna yfir. „Það var lokað fyrir umferð á meðan á vettvangsvinnunni stóð en það var ekki lengi þannig að umferð komst fljótt á aftur.“
Umferðaröryggi Samgönguslys Landhelgisgæslan Sveitarfélagið Hornafjörður Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira