Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2025 11:08 Árásin átti sér stað á skemmtistað á Ísafirði 8. apríl 2023. Vísir/Einar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa slegið mann með glerflösku í höfuðið á skemmtistað á Ísafirði í apríl 2023.
Maðurinn var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en sá sem fyrir árásinni varð hlaut sentimetra langan V-laga skurð á enni og sömuleiðis blæðingar á kinn og höku. Í dómnum segir að þegar aðalmeðferð hófst í desember hafi ákærði breytt afstöðu sinni til ákæru og játaði afdráttarlaust sök. Dómari leit til ungs aldurs ákærða við ákvörðun refsingar en einnig kemur fram í dómnum að hann hafi farið í meðferð vegna vímuefnafíknar auk þess að hann hafi hafið nám í framhaldsskóla og virðist einbeittur í að snúa lífi sínu til betri vegar. Á hinn bóginn var ekki litið fram hjá því að ákærði væri nú sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem beindist að höfði manns. Hann hefði tvívegis áður verið dæmdur fyrir sams konar brot, en þau hafi bæði verið framin áður en hann náði átján ára aldri og höfðu þau því ekki ítrekunaráhrif. Árásarmaðurinn á nokkurn brotaferil að baki og mat dómari í málinu að hæfileg refsing væri níu mánaða fangelsi, en að fresta skyldi fullnustu refsingar og hún niður falla að tveimur árum liðnum, haldi maðurinn almennt skilorð. Um hegningarauka var að ræða þar sem maðurinn hafði áður hlotið skilorðsbundinn dóm árið 2022 og svo aftur árið 2024.
Dómsmál Ísafjarðarbær Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira