Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. desember 2025 08:32 Draymond Green og Steve Kerr stóðu í stappi. Lachlan Cunningham/Getty Images Draymond Green missti algjörlega stjórn á skapinu og gekk inn í klefa eftir rifrildi við þjálfara Golden State Warriors, Steve Kerr. Rifrildið virðist hafa kveikt í Warriors því þeir unnu leikinn að lokum sannfærandi.
Eftir að Draymond missti boltann og Warriors gáfu svo frá sér tvær auðveldar körfur í þriðja leikhluta ákvað þjálfarinn að blása til leikhlés. Þar skiptust Draymond og Kerr á einhverjum orðum, sem endaði með því að leikmaðurinn labbaði brjálaður burt og fór inn í klefa. Hann sneri síðan ekki aftur fyrr en seint í fjórða leikhluta og spilaði ekkert meira. „Ég missti stjórn á skapinu og fannst best að forða mér bara“ sagði Draymond á blaðamannafundi eftir leik. Oh my: Draymond Green storms into the locker room after a huge argument with Steve Kerr.What is going on?!?pic.twitter.com/hzILqW1HNu— Legion Hoops (@LegionHoops) December 23, 2025 Rifrildið virðist þó hafa kveikt einhvern neista hjá Warriors því þeir voru fimm stigum undir en tóku 41-18 áhlaup eftir þetta stormasama leikhlé og unnu leikinn á endanum 120-97. Steve Kerr sagði að Draymond hafi sjálfur ákveðið að fara inn í klefa, hann hafi ekki verið sendur þangað, og þess vegna hefði hann ekkert fengið að spila meira þó hann hafi snúið aftur. Þeir voru báðir sammála um að erfa þetta atvik ekki við hvorn annan og gera meira mál úr þessu, enda ekki í fyrsta sinn og líklega ekki í síðasta sinn sem Draymond missir stjórn á skapinu.
NBA Mest lesið Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Leik lokið: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Körfubolti Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Enski boltinn Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Fleiri fréttir Amandine: Einvíginu er ekki lokið Leik lokið: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Sjá meira
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn