Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. desember 2025 16:01 Alfa Brá lét ferðaþreytu ekki á sig fá og skoraði 9 mörk fyrir Fram. Olís deild kvenna í handbolta hófst aftur í dag eftir hlé vegna heimsmeistaramótsins. Valur vann öruggan sigur gegn Stjörnunni og Fram sótti sigur gegn ÍR. Í báðum leikjum mátti finna leikmenn sem tóku þátt á HM fyrir Íslands hönd um síðustu helgi.
Valur var ekki í vandræðum með gestina úr Garðabæ og leiknum lauk með 32-22 sigri heimakvenna. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir fór mikinn og skoraði 11 mörk fyrir Val en á hinum endanum var Natasja Hammer öflugust, með 7 mörk fyrir Stjörnuna. Valur er enn sem áður í efsta sæti Olís deildarinnar, nú með 8 sigra og 2 töp úr 10 leikjum. Þrír af fjórum Þýskalandsförum Vals voru í hóp í dag, sléttri viku eftir síðasta leik Íslands á HM. Hafdís Renötudóttir átti góðan leik í markinu og varði 10 skot, Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði 4 mörk úr hægra horninu og skyttan Lovísa Thompson skaut 6 sinnum í netið. Thea Imani Sturludóttir var hins vegar utan hóps. Fram gerði sér góða ferð í Breiðholtið og fagnaði 30-27 sigri á útivelli gegn ÍR. Landsliðskonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, nýlent af HM, skoraði 9 mörk fyrir Fram. Hún deilir markadrottningartitli leiksins Ásdís Guðmundsdóttir. Báðir leikmenn ÍR sem fóru á HM tóku þátt í leik dagsins. Matthildur Lilja Jónsdóttir skoraði 1 mark en Katrín Tinna Jensdóttir komst ekki á blað. Nú stendur yfir sá síðasti af leikjunum þremur í Olís deild kvenna í dag. Haukar taka á móti Þór/KA á Ásvöllum og beina textalýsingu frá leiknum má finna hér fyrir neðan. Þar má einnig finna tvo leikmenn sem tóku þátt á HM fyrir Íslands hönd.
Olís-deild kvenna Fram ÍR Valur Stjarnan Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Sjá meira