Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. desember 2025 14:53 Sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga eru farin að lengja eftir því að vita hvað þau eigi að borga í veiðigjöld á næsta ári. Vísir/Vilhelm Fjárhæð veiðigjalds næsta árs liggur nú fyrir en eru upplýsingarnar seinni á ferðinni en venjulega. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkisins af veiðigjaldi næsta árs verði um fimmtán milljarðar. Lög gera ráð fyrir að ríkisskattstjóri geri tillögu um fjárhæð gjaldsins til ráðherra eigi síðar en 1. desember ár hvert, en enn sem komið er hafa ekki fengist svör frá stjórnvöldum um hvers vegna auglýsing um fjárhæð gjaldsins er seinni á ferðinni í ár en venjulega. Sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga að greiða gjaldið voru farin að lengja eftir því að vita hvað þau eigi að borga á næsta ári.
Umdeildar breytingum á lögum um veiðigjöld voru samþykktar í sumar. Með þeim voru gerðar breytingar á viðmiðum við útreikning aflaverðmætis sem hefur í för með sér áhrif til hækkunar veiðigjalds. Hins vegar þarf að reikna út gjaldið ár hvert miðað við þær forsendur sem lög gera ráð fyrir við ákvörðun gjaldsins. Samkvæmt 4. grein laga um veiðigjald, sem fjallar um fjárhæð gjaldsins, skal ríkisskattstjóri gera „tillögu um fjárhæð veiðigjalds hvers nytjastofns fyrir komandi veiðigjaldsár til þess ráðherra sem fer með sjávarútvegsmál eigi síðar en 1. desember,“ líkt og segir í lögunum. „Skal tillagan vera um að veiðigjaldið nemi 33% af reiknistofni hvers nytjastofns skv. 5. gr. Ráðherra auglýsir gjaldið sem krónur á kílógramm landaðs óslægðs afla fyrir áramót. Veiðigjaldsár er almanaksár.“ Seinna á ferðinni en venjulega Fyrsti desember var á mánudaginn og í dag er sá fimmti, svo ljóst er að ákvörðunin er seinni á ferðinni en tíðkast hefur en fjárhæð gjaldsins var birt í Stjórnartíðindum síðdegis í dag. Sjá einnig: „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Það er Fiskistofa sem leggur veiðigjald á aflann og renna tekjurnar í ríkissjóð, en á heimasíðu stofnunarinnar má sjá að í fyrra var auglýsing um veiðigjald birt í stjórnartíðindum þann 28. nóvember og þann 27. nóvember árið 2024, sem er öllu fyrr en raunin er í ár. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fyrirtæki í sjávarútvegi farin að lengja eftir upplýsingum um hver endanleg upphæð verður sem þeim endanlega ber að greiða frá og með áramótum samkvæmt nýjum lögum. Gjalddagi veiðigjalds er fyrsta dag hvers mánaðar vegna veiða þarsíðasta mánaðar, en breytt lög um veiðigjöld tóku gildi þann 1. nóvember síðastliðinn. Þannig ber sjávarútvegsfyrirtækjum að greiða gjaldið í fyrsta sinn samkvæmt nýjum lögum eftir innan við mánuð. Segir tafirnar óásættanlegar „Að sjálfsögðu erum við farin að lengja eftir þessu. Menn eru í áætlanagerð og öðru og ógangsæið er meira nú um hver niðurstaðan verður,“ segir Gunnþór Ingvason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, í samtali við Vísi. Aðferðarfræðin sem nýju lögin miði við sé að hans mati röng og fyrirtækin meira í lausu lofti nú en áður. „Það er óvissa hvar þetta endar svona rétt fyrir áramót, þannig þetta er ekki ásættanlegt,“ segir Gunnþór, sem þó kvaðst vongóður um að niðurstaðan myndi liggja fyrir fyrir lok dags, en fréttastofa náði af honum tali nokkru áður en auglýsingin var birt. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður SFS.Vísir/arnar Uppfært klukkan 15:25: Skömmu eftir að fréttin fór í loftið bárust upplýsingar frá atvinnuvegaráðuneytinu um að fjárhæð veiðigjalds næsta árs hafi nú verið birtar í Stjórnartíðindum. Gert er ráð fyrir að alls nemi tekjur ríkisins af veiðigjaldinu um fimmtán milljörðum á næsta ári. Í fyrstu útgáfu fréttarinnar kom fram að enn lægi fjárhæð veiðigjaldsins ekki fyrir en fréttin hefur nú verið uppfærð í samræmi við nýjar upplýsingar.
Skattar, tollar og gjöld Breytingar á veiðigjöldum Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Viðskipti erlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira