Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Aron Guðmundsson skrifar 25. nóvember 2025 08:02 Hulda Bjarnadóttir er forseti GSÍ Vísir/Samsett Golfsamband Íslands hefur sett sér nýja stefnu til ársins 2030 í stað fyrri stefnu sem átti að gilda til ársins 2027. Stöðug fjölgun skráðra kylfinga spilar þar stóra rullu en aðstaðan á höfuðborgarsvæðinu er sprungin að sögn forseta sambandsins.
Skráðum kylfingum golfíþróttarinnar hér á landi hefur fjölgað um rúmlega eLlefu þúsund frá 2019 eða um 65% frá þeim fjölda sem skráður var það árið. „Þetta er í raun ástæða þess að við ákveðum að endurskilgreina stefnuna okkar og markmiðin, af því að vöxtur hefur haldið áfram,“ segir Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ í samtali við íþróttadeild. „Maður var alltaf að búast við því að það færi að róast yfir þessu en það hefur ekki gerst. Og eins og þú vitnar þarna í, ellefu þúsund nýir iðkendur á þessum tímabili frá árinu 2019. Það er slatti og kallar á hausverk að vissu leiti.“ Og mun sambandið, í samstarfi við golfklúbba landsins þurfa að finna lausnir því kylfingum hefur fjölgað stöðugt ,og eru þeir hlutfallslega flestir á höfuðborgarsvæðinu, en þar er aðstaðan sprungin og efla þarf samtalið við sveitarfélögin. Leita þurfi leiða til þess að sortera byrjendur frá þeim sem lengra eru komnir í íþróttinni og um leið huga að ungviðinu og afreksfólki, tryggja að nýliðun sé góð. Aðgerðir sem hafi ekki þurft að grípa til áður en þekkist þó sem dæmi í öðrum löndum því þessi staða einskorðast ekki aðeins við Ísland. „Fyrstu skilaboðin eru þau að aðgengi skortir en þarna eru iðkendur til staðar. Við erum að flokka þetta betur þannig að byrjendur fari á minni vellina og svo framvegis. Það hefur alveg verið rými til þess hjá klúbbunum að hugsa þetta öðruvísi. Þannig að við höfum geta tekið á móti aðeins fleirum en það er sprungið í höfuðborginni. Það er rými strax og komið er út fyrir höfuðborgina og þá erum við líka að stilla aðeins markaðssetninguna af þangað. Að fara út fyrir höfuðborgina og forgangsraða börnum og unglingum alveg klárlega. En aðstaðan er sprungin það er bara þannig.“ Metnaðarfull golfmiðstöð Í svona árferði verði að passa að okkar afreks- og landsliðsfólk hafi tækifæri til þess að sinna sinni íþrótt eins vel og kostur er á. Golfsamband Íslands er með metnaðarfulla hugmynd um byggingu Golfmiðstöðvar sem gæti tryggt íslensku afreksstarfi aðstöðu til framtíðar. „Núna erum við að forgangsraða þessari afreksmiðstöð golfsins, hvernig aðstöðu þurfum við að halda ef við bara einblínum á og forgangsröðum á þá leið að tryggja allavegana okkar afreks- og landsliðum aðstöðu. Ef við horfum til fimm, tíu eða fimmtán ára og vöxturinn heldur áfram erum við bara komin í þrot. Við getum ekki endalaust komist að allsstaðar og þurfum því kannski líka að huga að alþjóða keppnishaldi og aðstöðu fyrir afreksstarfið og okkar helstu kylfinga.“ Viðtal við Huldu má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Golf Golfvellir Mest lesið Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Fótbolti Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari Fótbolti Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Körfubolti Everton - Liverpool | Barist um Bítlaborgina Enski boltinn Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Enski boltinn Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Enski boltinn „Gríðarlega stolt af þessu afreki og gaman að eiga þetta á ferilskránni“ Sport Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Enski boltinn „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ Enski boltinn Fleiri fréttir DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Heiða Rakel vann háskólamót Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ McIlroy varði Masters-titilinn Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Sögulegt forskot McIlroy að gufa upp Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Magnaður McIlroy með stærsta forskot sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Hröðustu flatir sem til eru Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Dagskráin í dag: Fyrsti dagur Masters, úrslitakeppni í körfu og Evrópuboltanum Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjáðu fullkomna púttið hjá dóttur McIlroy fyrir ári síðan McIlroy fær að kynnast fríðindum Masters-meistarans í fyrsta sinn Masters-miðvikudagur á Sýn Sport Sjá meira