Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. nóvember 2025 21:10 Dedrick Basile var hetja Tindastóls. Vísir/Pawel Tindastóll tók á móti Manchester Basketball í Síkinu í kvöld og lagði enska liðið að velli, 100-96.
Leikurinn var æsispennandi frá upphafi til enda og aldrei munaði miklu milli liðanna á stigatöflunni. Stólarnir voru þó skrefi á undan og voru með sjö stiga forystu í upphafi fjórða leikhluta, en glutruðu henni niður og lentu undir þegar tæpar tvær mínútur voru eftir, staðan þá 90-91 fyrir Manchester. Dedrick Basile lét hins vegar ekki segjast og svo gott sem gekk frá gestunum á næstu mínútunni. Basile skoraði þá sex stig í röð og kom Tindastóli 96-93 yfir þegar ellefu sekúndur voru eftir. Taiwo Badmus skoraði svo tvö snögg stig eftir að gestirnir töpuðu boltanum frá sér. Manchester náði að setja þrist til að minnka muninn í 98-96 en brutu svo á Júlíusi Orra Ágústssyni, sem kláraði leikinn á vítalínunni. Lokatölur 100-96. Kraftframherjinn Ivan Gavrilovic var stiga- og frákastahæstur hjá Tindastóli með 28 stig og 11 fráköst. Dedrick Basile fylgdi honum eftir í stigaskorun með 23 stig og var stoðsendingahæstur með 9 gjafir til liðsfélaga. Tindastóll hefur nú unnið þrjá af fjórum leikjum hingað til í Norður-Evrópudeildinni, eina tapið kom í síðustu á útivelli gegn Opava í Tékklandi.
Tindastóll Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira