Kólnun á fasteignamarkaði: Færri skoða og lægra verð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. nóvember 2025 21:09 Vísbendingar eru um að fyrstu kaupendum sé að fækka. Vísir/Vilhelm Fasteignasalar telja virkni fasteignamarkaðsins litla miðað við árstíma. Fáir mæta í opin hús og er það talið algengt að verð sé lækkað í söluferli. Þá eru vísbendingar um að fyrstu kaupendum sé að fækka.
Í nýrri könnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem meðlimir Félags fasteignasala tóku þátt í kemur fram að dómur Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða hafi þegar haft áhrif á hegðun almennings þegar kemur að fasteignum. Áframhaldandi kólnun sé á markaðnum en fasteignamarkaður er almennt talinn kaldur ef lítið sé um að vera og mögulegir kaupendur eru hlutfallslega fáir í samanburði við seljendur. Niðurstöðurnar gefa til kynna að fasteignasalar telji markaðinn í dag vera kaupendamarkað. Þá töldu langflestir að virkni markaðsins væri lítil miðað við árstíma. Fyrr á árinu var miðað við að í fyrstu vikunni sem íbúð væri að sölu væru á milli fjórir og átta sem skoðuðu fasteignina. Nú eru einungis þrír eða færri sem skoða fasteign fyrstu vikuna. Íbúðum á sölu hefur samt sem áður fjölgað, bæði þegar litið er til nýrra íbúða eða annarra. Nú eru rúmlega fimm þúsund íbúðir til sölu og hefur þeim fjölgað um þúsund frá því í apríl. Talið er að úrskurður Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða hafi áhrif á fasteignamarkaðinn. Í kjölfar úrskurðarins hafa stærstu viðskiptabankarnir breytt skilmálum sínum um hver fær verðtryggð lán. Í tilkynningu HMS segir að 86 íbúðir hafi verið settar á sölu frá því að úrskurðurinn var kveðinn upp um miðjan október. Að auki eru teikn á lofti um að fyrstu kaupendum fækki. Í könnunni kom fram að mun færri fasteignasalar miðluðu fasteignum til fyrstu kaupenda í mánuðinum.
Vaxtamálið Fasteignamarkaður Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira