Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Alfreð 7. nóvember 2025 11:31 „Hver veit nema draumastarfið sé að leita að þér núna án þess að það sé nokkurs staðar auglýst?,“ segir Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Alfreðs sem kynnti nýlega til sögunnar nýja þjónustu sem ber heitið Hæfnileit Alfreðs. Alfreð var að hleypa af stokkunum nýrri þjónustu sem er ný og byltingarkennd leið til að krækja í draumastarfið. Hæfnileit Alfreðs er spennandi kostur fyrir alla sem láta sig dreyma um hið fullkomna starf.
Vinsælasta atvinnuleitin er alltaf að þróast Íslendingar hafa um árabil gengið að því vísu að geta skoðað allflest atvinnutækifæri landsins á einum stað. „Þetta eru fágæt gæði sem við fáum öll að njóta og við hjá Alfreð erum meðvituð um ábyrgðina sem því fylgir að vera vinsælasta atvinnuleit landsins. Þess vegna erum við stöðugt að þróa nýjar og spennandi leiðir til að tengja saman fólk og fyrirtæki,“ segir Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Alfreðs. Hvort sem þú ert að leita að vinnu eða ert í starfi nú þegar þá er Hæfnileit Alfreðs frábær viðbót sem fjölgar tækifærum þínum á vinnumarkaði. Hæfnileit Alfreðs breytir leiknum „Hæfnileit Alfreðs er ný þjónusta sem e.t.v. mætti lýsa sem stafrænni vinnumiðlun.“ Hæfnileit reiðir sig ekki á atvinnuauglýsingar heldur geta fyrirtæki leitað beint í ört stækkandi hóp skráðra notenda. Anna Katrín telur að Hæfnileit muni hafa augljóst hagræði fyrir atvinnurekendur á komandi misserum og árum. „Með því að sigta út kandídata sem smellpassa við lýsingu á starfinu geta atvinnurekendur leitað uppi nákvæmlega rétta fólkið á skemmri tíma en hingað til hefur þekkst.“ Það segir sig sjálft að með því að hraða ferlinu frá starfsmannaleit til ráðningar geta fyrirtæki sparað verulegan tíma, fyrirhöfn og kostnað við úrvinnslu umsókna. Starfsfólk Alfreðs er sterkur og samheldinn hópur. Áður óþekkt tækifæri á vinnumarkaði Hæfnileit Alfreðs opnar nýja og spennandi möguleika. „Hvort sem þú ert að leita að vinnu eða ert í starfi nú þegar þá er Hæfnileit Alfreðs frábær viðbót sem fjölgar tækifærum þínum á vinnumarkaði,“ segir Anna Katrín. Hingað til hafa notendur Alfreðs aðeins getað sótt um auglýst störf en með því að skrá sig í Hæfnileit Alfreðs bjóðast þeim jafnframt störf sem ekki eru auglýst. „Hver veit nema draumastarfið sé að leita að þér núna án þess að það sé nokkurs staðar auglýst?“ Fyrir okkur er þó alltaf mikilvægast að halda áfram að þróa og finna bestu leiðirnar til að svara þörfum atvinnulífsins. Einfalt og fljótlegt að uppfæra prófílinn Fyrir núverandi notendur Alfreðs þá er einfalt og fljótlegt að uppfæra prófílinn sinn á Alfreð til að vera með í Hæfnileit. Það þarf ekki að taka mikið meira en þrjár mínútur. „Það er reyndar leitun að þeim sem ekki eru með prófíl á Alfreð nú þegar,“ segir Anna Katrín. Og ef þú hefur áhuga á að skrá þig í Hæfnileit þá getur þú byrjað núna strax með því að smella hér. Alfreð horfir til framtíðar Í dag er Alfreð miklu meira en bara vettvangur fyrir auglýsingar. Fyrirtækið hefur fært út kvíarnar í vöruframboði og þjónustu auk þess sem vörumerkið er komið á heimskortið með starfsemi í fimm löndum. „Fyrir okkur er þó alltaf mikilvægast að halda áfram að þróa og finna bestu leiðirnar til að svara þörfum atvinnulífsins. Við trúum því að Hæfnileit Alfreðs sé enn eitt skrefið í átt að því að auðvelda fólki og fyrirtækjum að finna hvert annað,“ segir Anna Katrín að lokum.
Mest lesið Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Viðskipti innlent Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Viðskipti erlent Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent