Samstarf

Orkuveitan jafnar stöðu for­eldra á vinnu­markaði

Orkuveitan
Ása Björk Jónsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Kristrún Pétursdóttir eru mannauðsleiðtogar hjá Orkuveitunni
Ása Björk Jónsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Kristrún Pétursdóttir eru mannauðsleiðtogar hjá Orkuveitunni

Á hverju ári minnir alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars á að jafnrétti kynjanna er ekki sjálfgefið. Árangur síðustu áratuga byggir á markvissri baráttu, hugrekki og samstöðu. Um leið er dagurinn áminning um að enn er verk að vinna, ekki síst þegar kemur að efnahagslegu jafnrétti, skiptingu ábyrgðar á heimilinu og möguleikum fólks til að samræma fjölskyldulíf og starfsframa.

„Fæðing barns markar stór tímamót í lífi fólks. Þetta er tími gleði og breytinga, en líka tími þar sem stuðningur vinnustaðarins skiptir sköpum. Hjá Orkuveitunni trúum við því að fólk eigi ekki að þurfa að velja á milli fjölskyldulífs, fjárhagslegs öryggis og starfsþróunar. Góður vinnustaður mætir fólki þar sem það er statt í lífinu,“ segir Ása Björk Jónsdóttir mannauðsleiðtogi hjá Orkuveitunni.

„Við erum alltaf að hugsa til framtíðar. Við sjáum um mikilvæga innviði sem snerta líf fólks hvern einasta dag. Við tökum því hlutverki alvarlega og af ábyrgð. Sú ábyrgð nær ekki aðeins til samfélagsins og náttúrunnar, heldur líka til fólksins sem vinnur hér. Vellíðan, öryggi og jafnrétti starfsfólks er forsenda þess að við náum markmiðum okkar til framtíðar,“ segir Ása.

Fyrirtæki Orkuveitunnar hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir framúrskarandi árangur í að jafna kynjahlutföll í framkvæmdastjórn.

Orkuveitan hefur stigið stór skref að því markmiði að vera í forystu í jafnréttismálum með nýjum úrræðum sem endurspegla fjölbreyttar þarfir nútímafjölskyldna.

„Með því að tryggja eðlilega launaþróun, uppsöfnun orlofs á orlofstíma og með skýrum ferlum höfum við lagt áherslu á stöðugleika og sanngirni í kringum töku fæðingarorlofs. Við höfum gert breytingar sem við trúum að muni gera góðan vinnustað enn betri,“ segir Erna Sigurðardóttir mannauðsleiðtogi.

Vinnurými í Orkuveitunni hefur verið útbúið svo starfsfólk getur haft börnin hjá sér á vinnutíma

Nýlegar breytingar hjá Orkuveitunni þegar kemur að þessum málum eru:

  • Launað leyfi fyrir barnshafandi starfsfólk allt að einum mánuði fyrir settan dag, án þess að ganga á veikindarétt, til að skapa svigrúm til hvíldar og undirbúnings.
  • Hlutastarf að loknu fæðingarorlofi, þar sem foreldrum býðst að vinna 80% starf á fullum launum í allt að þrjá mánuði. Úrræðið er í boði fyrstu tvö ár barns.
  • Rými á vinnustaðsem er hannað með þarfir barna í huga. Þar sem leikur, hlátur og öryggi eru í forgangi þegar aðstæður kalla á að börn komi með í vinnuna.
  • Vöggugjöf frá Orkuveitunni, styrkur sem nýtist á velferðatorginu Kara Connect og styður við þjónustu tengda meðgöngu, fæðingu og fyrstu mánuði barns.

Þessi úrræði eru hluti af heildrænni sýn á vinnustað sem er fjölskylduvænn og tekur mið af þörfum nútímafjölskyldna.

Full laun í sex mánaða fæðingarorlofi

„Frá og með 1. janúar 2027 mun Orkuveitan tryggja full laun í allt að sex mánuði í fæðingarorlofi, með skilgreindu þaki. Greiðslan bætist ofan á réttindi úr Fæðingarorlofssjóði og er ætlað að skapa aukið öryggi á einu mikilvægasta tímabili í lífi allra barnafjölskyldna. Breytingarnar ná til barna fædd frá og með næstu áramótum,“ segir Kristrún Pétursdóttir mannauðsleiðtogi.

Hún segir ennfremur að þetta sé lykilaðgerð í jafnréttisstarfi Orkuveitunnar og með henni vilji fyrirtækið:

  • draga úr fjárhagslegum hindrunum við töku fæðingarorlofs
  • stuðla að jafnari töku foreldra á orlofi, sérstaklega feðra
  • styðja við jafnræði í tekjum og lífeyrissöfnun til lengri tíma

„Þannig brúum við bilið sem oft hefur haft áhrif á ákvarðanir fólks, og sendum skýr skilaboð um að foreldrahlutverkið sé sameiginleg ábyrgð,“ segir Kristrún.

Fjárfesting í fólki og framtíðinni

Þær stöllur segja mikilvægt að allt starfsfólk nýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Fyrirtækið vilji skapa vinnuumhverfi þar sem fólk getur tekið virkan þátt á vinnumarkaði á ólíkum æviskeiðum lífsins, án þess að fórna öryggi, metnaði eða framtíðarsýn.

„Þetta er ekki aðeins mannauðsstefna. Þetta er fjárfesting í fólki, jafnrétti og samkeppnishæfni Orkuveitunnar. Með því að hlúa að fólkinu okkar styrkjum við liðsheildina, frumkvæðið og þá sköpunarkrafta sem knýja áfram orkuskipti, nýsköpun og sjálfbæra þróun,“ segir Ása Björk að lokum.

Fyrirtæki Orkuveitunnar eru Orka náttúrunnar, Veitur, Carbfix og Ljósleiðarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×