Burðardýr fengu þungan dóm fyrir kókaínsmygl Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 22. október 2025 19:37 Hin ákærðu játuðu brot sín strax við þingfestingu málsins. Vísir/Vilhelm Karlmaður og kona hafa verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir tilraun til þess að smygla rúmlega þremur kílóum af kókaíni til landsins frá Þýskalandi í ágúst.
Hin dæmdu eru Eduardo Aguilera Del Valle, karlmaður á fertugsaldri, og Maria Estrella Jimenez Barrull, kona á fimmtugsaldri. Þjóðerni þeirra var afmáð í dómi Héraðsdóms Reykjaness en málið var þingfest og dómtekið í dag. Þeim var gefið að sök að hafa flutt 3,3 kíló af kókaíni með 66-82 prósent styrkleika til landsins frá Berlín í Þýskalandi um miðjan ágúst þessa árs. Efnin, sem falin voru í ferðatöskum þeirra beggja, væru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Málsatvik eru ekki rakin nánar í dóminum, svo sem hvar eða hvenær þau voru handtekin og færð í varðhald. Við þingfestingu játuðu Del Valle og Jimenez Barrull bæði sök. Af fyrirliggjandi gögnum ályktaði dómurinn að þau hafi ekki verið eigendur efnanna og að þau hafi ekki komið að skipulagningu á sölu og innflutningi þeirra með öðrum hætti en að hafa samþykkt að flytja þau til landsins gegn greiðslu. Við ákvörðun refsingar var bæði litið til lítillar hlutdeildar þeirra í málinu og til þess að þau hafi játað sök strax við þingsetningu. Sem fyrr segir voru þau dæmd til þriggja ára fangelsisvistar, en til frádráttar þeim refsingum kæmi gæsluvarðhald þeirra frá 17. ágúst síðastliðnum. Þá voru þau dæmd til að sæta upptöku á kókaíninu sem þau komu með til landsins.
Dómsmál Fíkniefnabrot Smygl Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira