Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2025 15:57 Finnska vörnin réði lítið við Dennis Schröder sem skilaði 29 framlagsstigum í dag. epa/TOMS KALNINS Þýskaland er komið í úrslit Evrópumóts karla í körfubolta eftir sigur á Finnlandi, 98-86, í Ríga í Lettlandi í dag. Þetta er í fyrsta sinn í tvo áratugi sem Þjóðverjar komast í úrslit EM.
Finnar byrjuðu leikinn betur en eftir að hafa skorað tíu stig í röð um miðjan 1. leikhluta náðu Þjóðverjar undirtökunum og létu þau ekki af hendi það sem eftir lifði leiks. Þjóðverjar hittu úr fjörutíu prósent þriggja stiga skota sinna og skoruðu fimmtán stig eftir að Finnar höfðu tapað boltanum. Þá skoraði þýska liðið 26 stig af vítalínunni. Dennis Schröder fór mikinn í liði Þýskalands. Hann skoraði 26 stig, tók fimm fráköst og gaf tólf stoðsendingar, þar af sjö í 1. leikhluta. Franz Wagner skoraði 22 stig, Tristan Da Silva þrettán og Daniel Thies skilaði tíu stigum og ellefu fráköstum. Oliver Nkamhoua skoraði 21 stig og tók níu fráköst í finnska liðinu og aðalstjarna þess, Lauri Markkanen, skoraði sextán stig og tók átta fráköst. Þýskaland komst síðast í úrslit EM 2005. Þá tapaði liðið fyrir Grikklandi, 62-78. Þjóðverjar unnu HM fyrir tveimur árum og vinni þeir annað hvort Grikki eða Tyrki í úrslitaleik EM á sunnudaginn verða þeir bæði ríkjandi heims- og Evrópumeistarar. Þýskaland varð Evrópumeistari í fyrsta og eina sinn á heimavelli 1993. Seinni undanúrslitaleikurinn, milli Grikklands og Tyrklands, hefst klukkan 18:00 í kvöld.
EM 2025 í körfubolta Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira