Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. september 2025 11:30 Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul vakti mikla athygli í The Secret Lives of Mormon Wives. Araya Doheny/Getty Images Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul skaust upp á stjörnuhimininn fyrir nokkrum árum í þáttum um mormónaskvísur í Utah fylki í Bandaríkjunum. Nú mun frægðarsól hennar skína enn skærar því hún var nýverið kynnt inn sem nýjasta piparjónkan eða The Bachelorette í samnefndum raunveruleikaþáttum.
The Bachelorette eru einhverjir vinsælustu ástarþættir sögunnar og hafa verið á skjánum í áratugi þar sem annað hvort piparjónka eða piparsveinn reynir að finna ástina. View this post on Instagram A post shared by Us Weekly (@usweekly) Taylor Frankie Paul er hluti af mormónaeiginkonunum í The Secret Lives of Mormon Wives en er þó fráskilin þriggja barna móðir. Hún er óneitanlega aðal stjarnan í kvennahópnum sem samanstendur af níu konum, með lang flesta fylgjendur á samfélagsmiðlum og sú sem hefur hvað mest verið á milli tannanna á fólki. Sömuleiðis er Taylor Frankie Paul í raun ástæða þess að raunveruleikaþættirnir um ungu mormónakonurnar fóru af stað. Hún ásamt nokkrum öðrum stofnuðu TikTok aðganginn Mom Tok sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum. Árið 2022 braut Frankie Paul svo næstum Internetið þegar hún opnaði sig um „swing“ senuna í mormónasamfélaginu og sagði að nokkrar vinkonur deildu gjarnan mökum og væru oft öll saman í ástarlotum. Margar kvennanna væru mjög ósáttar við Frankie Paul og sögðu þetta lygi en þrátt fyrir það varð hópurinn enn frægari og fékk í kjölfarið boð um að gera raunveruleikaþætti. View this post on Instagram A post shared by The Secret Lives of Mormon Wives (@secretlivesonhulu) Hún átti þriðja barn sitt með Dakota Mortensen sem var áberandi í fyrstu tveimur seríum af Secret Lives. Þá kom í ljós að hann hafði svikið hana og haldið fram hjá henni og fóru þau á endanum í sitt hvora áttina. Taylor Frankie Paul mun án efa draga að nýja áhorfendur fyrir The Bachelorette í vetur og vonandi finna ástina ásamt því að sjokkera eins og henni einni er lagið. Hún fer alltaf eigin leiðir og lætur neikvæðar raddir ekki breyta sér og sínu.
Hollywood Ástin og lífið Bíó og sjónvarp Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira