Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. ágúst 2025 10:29 Ágúst Ólafur á þingi fyrir Samfylkinguna árið 2019. Vísir/Vilhelm Samkomulag er á milli borgarstjóra og mennta- og barnamálaráðherra að Ágúst Ólafur Ágústsson, aðstoðarmaður borgarstjóra, muni taka við nýju starfi hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu sem aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar, mennta- og barnamálaráðherra.
Þetta segir Ágúst Ólafur í færslu á Facebook. Ágúst Ólafur er annar aðstoðar Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra sem lætur af störfum á innan við þremur mánuðum. Katrín M. Guðjónsdóttir baðst lausnar frá starfinu í maí og tók Ágúst Ólafur við starfinu í framhaldinu. „Þegar haft var samband við mig og óskað eftir kröftum mínum í ráðuneytið þá hafði ég nýlega ráðið mig í núverandi starf. Ég fann þá að barna- og menntamálin á landsvísu toguðu enda hef ég lengi brunnið fyrir þeim málum,“ segir Ágúst Ólafur. „Sem þingmaður lagði ég fram tillögu um lögfestingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var samþykkt. Fyrir þá baráttu fékk ég sérstaka viðurkenningu Barnaheilla á 20 ára afmælisdegi Barnasáttmálans fyrir „sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra“, sem mér þykir mjög vænt um. En ég flutti jafnframt fjölmörg önnur mál sem snúa að málefnum barna og stuðningi við barnafjölskyldur en hef einnig verið viðloðandi kennslu undanfarin 14 ár,“ segir Ágúst Ólafur. „Ég átti gott samstarf við Guðmund Inga á sínum tíma þegar við sátum báðir á Alþingi og ég hlakka til að vinna með honum á vettvangi ráðuneytisins. Ég er afar þakklátur fyrir stuttan en góðan tíma í Ráðhúsinu og kveð borgarstjóra og annað samstarfsfólk með miklum söknuði.“ Ríkisstjórnin hafi sett mennta- og barnamál á oddinn. „Ég hlakka til að taka þátt í því verkefni og vera hluti af öflugu teymi ríkisstjórnarflokkanna.“ Ágúst Ólafur var á sínum tíma þingmaður Samfylkingarinnar og starfaði því sem aðstoðarmaður samflokkskonu sinnar Heiðu Bjargar. Nú vendir hann kvæði sínu í kross og bætist í hóp aðstoðarmanna ráðherra Flokks fólksins. Annar aðstoðarmaður ráðherrans Á vef stjórnarráðsins segir að Ágúst hefji störf 1. september og mun starfa með Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur sem einnig er aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra. „Ágúst er menntaður lögfræðingur, hagfræðingur og stjórnsýslufræðingur með lögfræðipróf og BA-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands 2003, ásamt MPA-gráðu frá New York University 2011. Ágúst Ólafur er fyrrverandi alþingismaður og efnahagsráðgjafi forsætisráðherra. Hann kemur til ráðuneytisins frá Reykjavíkurborg þar sem hann gegndi stuttlega starfi aðstoðarmanns borgarstjóra. Þá sat hann í bankaráði Seðlabanka Íslands og gegndi meðal annars formennsku í viðskiptanefnd Alþingis, Evrópunefnd forsætisráðherra og sat í framkvæmdasjóði aldraða ásamt því að leiða stjórnskipaða „Barnanefnd“ um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum. Hann vann sem sérfræðingur á aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í New York og hefur kennt við Háskóla Íslands ásamt því að sinna ráðgjafarstörfum, m.a. fyrir Sjúkraliðafélag Íslands, Rannsóknarsetur skapandi greina, Parkinson-samtökin og Ljósið,“ segir um reynslu Ágústs.
Borgarstjórn Samfylkingin Flokkur fólksins Vistaskipti Reykjavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Ágúst Ólafur Ágústsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Ágúst hefur störf 13. júní næstkomandi. 10. júní 2025 16:13 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira
Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Ágúst Ólafur Ágústsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Ágúst hefur störf 13. júní næstkomandi. 10. júní 2025 16:13