Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. ágúst 2025 09:26 Helgi Vilberg Hermannsson er látinn 73 ára að aldri en hann var atkvæðamikill í listasenunni á Akureyri, stofnaði Myndistaskólann og starfaði sem skólastjóri hans í 45 ár. Helgi Vilberg Hermannsson, listamaður og skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri, lést sunnudaginn 10. ágúst, 73 ár að aldri.
Helga er minnst í Íslendingi, vefriti Sjálfstæðismanna á Akureyri, og í norðlenska miðlinum Akureyri.net. Helgi Vilberg fæddist á Akureyri 7. nóvember 1951, sonur hjónanna Helgu Hrannar Unnsteinsdóttur, verslunarmanns, og Hermanns Hólm Ingimarssonar, skipasmiðs. Helgi átti tvö systkini, Unnstein Hólm sem lést árið 1954, aðeins eins árs að aldri, og Hugrúnu Sif. Helgi lætur eftir sig eiginkonuna Soffíu Sævarsdóttir og þrjú börn, Rannveigu, Ýr og Helga Vilberg, sem hafa öll helgað sig listrænni sköpun. Hitaði upp fyrir Kinks en valdi myndlistina Helgi ólst upp á Akureyri og varð snemma listrænn og skapandi. Hann lék á gítar og stofnaði með þremur vinum bítlaskotnu hljómsveitina Bravó árið 1964, þá aðeins 13 ára og elstur hljómsveitarmeðlima. Með Helga í sveitinni voru Sævar Benediktsson, Kristján Guðmundsson og Þorleifur Jóhannsson, sem lést árið 2020. Bravó starfaði stutt en afrekaði nokkuð sem fáar aðrar sveitir hafa gert þegar þeir hituðu upp fyrir bresku rokkhljómsveitina Kinks á átta tónleikum fjögur kvöld í röð í septembermánuði 1965 í Austurbæjarbíói í Reykjavík. Bravó kom aftur saman á nýrri öld en þá án Helga sem hafði valið sér annað listform en tónlistina. Myndlistin varð fyrir valinu og varð hún meginvettvangur í lífi og starfi Helga. Hann stundaði listnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk þaðan kennaraprófi árið 1973. Við heimkomuna til Akureyrar varð Helgi kennari við Oddeyrar- og Glerárskóla frá 1973 til 1977. Á þeim tíma sat hann einnig í skólastjórn Myndsmiðjunnar. Helgi stofnaði árið 1974 Myndlistaskólann á Akureyri í félagi við Úllu Árdal og Aðalstein Vestmann. Helgi tók við skólastjórn Myndlistaskólans og sinnti því starfi í 45 ár, uns hann lét af störfum vegna veikinda vorið 2022. Listin og félagsstarfið Fyrsta einkasýning myndlistarmannsins Helga Vilbergs var í Hlíðarbæ 1975 og urðu þær í heildina sex; í Gallerí Háhól 1978, Slúnkaríki 1985, Gallerí Glugga 1987, Listasafninu á Akureyri 1994 og í Samlaginu - Listhúsi 2006. Að auki tók hann þátt í fjölmörgum samsýningum heima og erlendis. Helgi Vilberg sat í ýmsum stjórnum og nefndum í gegnum árin. Hann var gjaldkeri Gilfélagsins 1991 til 1993, formaður byggingarnefndar Gilfélagsins á sama tíma og ráðgjafi nefndar Akureyrarbæjar um Listasmiðstöðina í Grófargili 1992 til 1994. Helgi var fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í menningarmálanefnd Akureyrar um tíma, sat í stjórn Minjasafnsins á Akureyri, var fulltrúi í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og var tvívegis forseti Rótarýklúbbs Eyjafjarðar. Helgi var virkur í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri þar sem hann gegndi mörgum embættum sem ritari, varaformaður og formaður. Einnig var hann formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar, ritari fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri og stofnaði vefritið Íslending árið 2001 og ritstýrði því fyrstu sex árin. Helgi hætti að mestu virku félagsstarfi í Sjálfstæðisflokknum eftir að hann hætti ritstjórn Íslendings og stofnaði, í félagi við áhugamenn um stjórnmál, bæjarmálahópinn Pollinn þar sem fólk úr öllum flokkum kom saman til funda í Myndlistaskólanum til að ræða þjóðmál á breiðum grunni, jafnt innanlands sem utan.
Andlát Akureyri Skóla- og menntamál Myndlist Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira