Flottasti garður landsins er á Selfossi Gaðheimar 28. júlí 2025 12:53 Sigurvegarinn í leiknum Flottasti garður landsins eru hjónin Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir og Gísli Þór Guðmundsson en þau hlutu rúmlega þriðjung atkvæða. Hjónin Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir og Gísli Þór Guðmundsson sigruðu í leiknum Flottasti garður landsins 2025 sem fór fram á Bylgjunni og Vísi í júlí. Dómnefnd valdi fimm garða og hlustendur Bylgjunnar og lesendur Vísis kusu sigurvegarann sem hlaut rúmlega þriðjung atkvæða. „
Þetta var óvænt og skemmtilegt,“ segir Sólveig en þau hjónin tóku á móti vinningnum um helgina sem er 100.000 kr. inneign hjá Garðheimum. Flottasti garður landsins árið 2025 stendur við Austurveg 29 á Selfossi en þangað fluttu þau árið 2000. „Þá var ekki stingandi strá hér fyrir utan nokkur birkitré fyrir aftan húsið,“ segir Sólveig. „Við hófum fljótlega framkvæmdir í garðinum eftir að við fluttum inn. Byrjuðum í einu horninu og færðum okkur svo rólega áfram til í garðinum. Uppáhalds staðurinn okkar er portið fyrir aftan húsið en þar höfum við m.a. komið fyrir garðskála. Þetta er sannkölluð paradís.“ Þau hjónin eru einstaklega samstíga í verkefni að sögn Sólveigar. „Ég fáum bæði alls kyns hugmyndirnar varðandi garðinn og svo vinnum við þetta í sameiningu eins og gott lið.“ Hún segir vinninginn eiga eftir að nýtast þeim vel. „Við fórum í Garðheima um helgina og þar sáum við ýmislegt sem getur komið að góðum notum í garðinum. Það tekur smá tíma að melta næstu skref en ég hef engar áhyggjur, vinningurinn á eftir að nýtast mjög vel enda erum við alltaf að bardúsa eitthvað. Næsta stóra verkefni er svalir að aftan en við byrjuðum á þeim í júlí og verður svo sannarlega gaman að sjá lokaútkomuna. Við viljum að lokum senda þakklæti til allra sem komu að þessum leik.“ „Þáttakan í leiknum var frábær,“ segir Reynir Haraldsson, markaðsfulltrúi hjá Garðheimum. „Þarna voru garðar sem komust ekki í efstu fimm sætin sem voru svo flottir að það væri hægt að rukka inn í á. Hjónin Sólveig og Gísli eru sannarlega vel að sigrinum komin. Þau eru yndisleg hjón og það verður skemmtilegt að sjá hvernig þau nýta vinninginn til að bæta sinn fallega garð enn frekar.” Garðheimar, Bylgjan og Vísir þakkar öllum sem tóku þátt!
Flottasti garður landsins 2025 Blóm Mest lesið Skyrið okkar ekki lengur ostur heldur jógúrt Lífið Barnaefni fyrir fullorðna Gagnrýni „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Lífið Snýr aftur sem ritstjóri eftir tvo áratugi Lífið Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Lífið Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Lífið Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Tónlist Fréttatía vikunnar: Þingsetning, landsleikur og klamydía Lífið Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Lífið Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lífið samstarf Fleiri fréttir Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira