Erlent

Geim­skipið sprakk á jörðu niðri

Samúel Karl Ólason skrifar
Líklega stóð til að reyna að skjóta geimfarinu sem sprakk í nótt á loft seinna í mánuðinum.
Líklega stóð til að reyna að skjóta geimfarinu sem sprakk í nótt á loft seinna í mánuðinum. Skjáskot

Nýjasta geimflaug SpaceX af gerðinni Starship sprakk í loft upp á jörðu niðri í Texas í nótt. Verið var að undirbúa eldflaugina fyrir tilraun þar sem kveikja átti á hreyflum hennar og varð gífurlega stór sprenging á tilraunapallinum. Engan sakaði í sprengingunni.

Sprengingin náðist á myndband en ekki liggur fyrir hve miklar skemmdir urðu á pallinum.

Tilraunin átti að vera undirbúningur fyrir tíunda tilraunskot SpaceX á Starship geimfari fyrirtækisins. Fyrri tilraunaskot hafa ekki gengið vel en þrenn Starship geimskip hafa sprungið í loft upp í þremur síðustu tilraunaskotum.

Samkvæmt Spaceflightnow stóð líklega til að reyna nýtt tilraunaskot þann 29. júní. Þá átti að skjóta Starship geimfarinu á braut um jörðu með Super Heavy eldflaug SpaceX.

Sprenginguna má sjá í spilaranum hér að neðan en myndavélum er iðulega beint að starfstöð SpaceX í Texas og var verið að fylgjast með tilrauninni í nótt.

Forsvarsmenn SpaceX segja íbúa á svæðinu í engri hættu en hafa beðið fólk um að halda sig fjarri staðnum þar sem sprengingin varð.


Tengdar fréttir

Geimfar SpaceX splundraðist eftir 45 mínútna flug

Starship-geimfarið sem fyrirtækið SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, splundraðist 45 mínútum eftir að því var skotið á sporbaug um jörðu í gærkvöld. Geimskotið var það níunda í röð hjá SpaceX sem stefna á að komast til tunglsins og síðan til annarra reikistjarna.

Springur Starship í þriðja sinn í röð?

Starfsmenn SpaceX munu í kvöld gera tilraun til að skjóta Starship geimfarinu á loft í níunda sinn. Þó nokkrar breytingar hafa verið gerðar á geimfarinu sem ætlað er að bæta líkurnar á því að tilraunaskotið heppnist.

Amazon í samkeppni við SpaceX í geimnum

Starfsmenn Amazon og United Launch Alliance skutu í gær upp fyrstu 27 gervihnöttunum í nýrri gervihnattaþyrpingu Amazon. Þyrping þessi ber nafnið Kuiper og á á endanum að vera mynduð með að minnsta kosti 3.236 gervihnöttum sem gera eiga fólki á jörðu niðri kleift að fá aðgang að netinu.

Annað Starship sprakk í loft upp

Annað tilraunaskot Starship-geimskips SpaceX í röð misheppnaðist í gærkvöldi. Geimskipið sprakk skömmu eftir geimskotið og dreifðist brakið úr því í háloftunum yfir Flórída og Karíbahafinu þar sem það brann, með tilheyrandi sjónarspili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×