Lífið

Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá rauða dreglinum í Cannes í gær þar sem Tom Cruise spókaði sig, meðal annarra.
Frá rauða dreglinum í Cannes í gær þar sem Tom Cruise spókaði sig, meðal annarra. AP/Millie Turner

Forsvarsmenn kvikmyndahátíðarinnar í Cannes opinberuðu í morgun nýja reglu um að leikarar sem hafa verið sakaðir um kynferðislegt ofbeldi, megi ekki ganga eftir rauða dreglinum. Reglan nýja snýr beint að franska leikaranum Théo Navarro-Mussy, sem leikur í Dossier 137.

Hann var nýverið sakaður um að hafa brotið á þremur konum en átti að ganga rauða dregilinn með samstarfsmönnum sínum í Cannes í kvöld.

Deadline hefur eftir frönskum miðlum að Thierry Frémaux, stjórnandi Cannes, hafi tekið þessa ákvörðun eftir að hann fékk veður af því að konurnar þrjár hefðu sakað Navarro-Mussy um nauðgun og andlegt- og líkamlegt ofbeldi, frá árunum 2018, 2019 og 2020.

Ákærurnar gegn honum voru felldar niður í síðasta mánuði en konurnar hafa lýst því yfir að þær muni höfða einkamál gegn honum, samkvæmt Hollywood Reporter. Frémaux er sagður hafa tekið þessa ákvörðun í samráði með framleiðendum Dossier 137.

Frémaux réttlætir ákvörðun sína með því að segja að málið gegn Navarro-Mussy sé enn yfirstandandi og að bannið verði fellt úr gildi verði hann fundinn saklaus.

Þessi nýja regla er sérstaklega til komin vegna ásakan gegn franska leikaranum Théo Navarro-Mussy.Getty/Stephane Cardinale - Corbis

Engin nekt heldur

Fyrr í vikunni lýstu forsvarsmenn Cannes því yfir að nekt væri einnig bönnuð á rauða dreglinum, og á öðrum viðburðum sem tengjast kvikmyndahátíðinni. AP fréttaveitan segir að nekt hafi ávallt verið litin hornauga á Cannes en nú hafi banni formlega verið bætt við reglurnar vegna ítrekaðra viðburða þar sem fólk sýnir nekt.

Er meðal annars vísað til Biöncu Censori á Grammy verðlaununum.

Sjá einnig: Mætti svo gott sem nakin á rauða dregilinn

Talsmenn Cannes segja reglunum ekki ætlað að hafa of mikil áhrif á klæðaburð fólks. Eingöngu að banna fulla nekt á rauða dreglinum í samræmi við áherslur hátíðarinnar og frönsk lög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.