Ísak á leið í atvinnumennsku Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2025 09:00 Ísak Gústafsson sækir að marki Porto í Evrópudeildinni í vetur og Mosfellingurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson tekur á móti honum. vísir/Anton Selfyssingurinn Ísak Gústafsson hefur skrifað undir samning til tveggja ára við TMS Ringsted. Þessi 21 árs gamli handboltamaður fer til Danmerkur í sumar.
Ísak er uppalinn hjá Selfossi en hefur leikið með Val síðustu tvö tímabil. Hann er örvhent skytta og átti sinn þátt í því að Valsmenn skyldu verða Evrópubikarmeistarar á síðustu leiktíð, þar sem hann skoraði sjö mörk í úrslitaleiknum. Í vetur hefur Ísak samtals skorað 29 mörk í Evrópudeildinni, gegn liðum eins og Porto, Vardar Skopje og Melsungen. Ísak hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands og átti þátt í bronsverðlaununum sem U21-landsliðið vann á HM sumarið 2023. Eftir átján umferðir í dönsku úrvalsdeildinni er Ringsted í 11. sæti af 14 liðum en með sextán stig og heilum níu stigum fyrir ofan næsta lið. Ringsted er neðst í þéttum pakka og til að mynda aðeins fimm stigum frá 4. sæti deildarinnar. Ísak hafði skorað 46 mörk í 11 leikjum í Olís-deildinni í vetur áður en hann reif liðþófa í hné en samkvæmt frétt handbolta.is gæti verið að hann snúi aftur til keppni fljótlega, jafnvel í kvöld. Valsmenn eru í 4. sæti deildarinnar með 20 stig, aðeins þremur stigum frá toppliði FH og með leik til góða á Fram og Aftureldingu sem sitja í 2. og 3. sæti. Þeir mæta FH í sannkölluðum stórleik í kvöld.
Danski handboltinn Valur Olís-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira