Sigurmark frá miðju og Dagur mætir Frökkum Sindri Sverrisson skrifar 28. janúar 2025 21:34 Nedim Remili og félagar í franska landsliðinu keppa um verðlaun á HM eins og svo oft áður. Getty/Slavko Midzor Dramatíkin var alls ráðandi í 8-liða úrslitunum á HM karla í handbolta í kvöld. Frakkar eru komnir í undanúrslit eftir sigurmark gegn Egyptum frá miðju á síðustu sekúndu, og þeir mæta Króötunum hans Dags Sigurðssonar.
Eftir ótrúlegan sigur Króata gegn Ungverjum í Zagreb fyrr í kvöld þá hélt spennan áfram þar í leik Frakklands og Egyptalands. Nedim Remili skoraði þegar hálf mínúta var eftir og kom Frökkum í 33-32 en Yahia Omar tókst að jafna metin þegar örfáar sekúndur voru eftir. Sá tími dugði þó Frökkum því Luka Karabatic skoraði úr miðjuhringnum í autt mark Egypta sem höfðu tekið markvörð sinn af velli til að fjölga í lokasókn sinni. Það verða því Evrópumeistarar Frakklands og Króatía sem mætast í undanúrslitum á fimmtudaginn í Zagreb. Útlitið var gott hjá Frökkum í hálfleik. Þeir nýttu sér mistök í sóknarleik Egypta og skoruðu fjögur síðustu mörkin fyrir hléið. Melvyn Richardson skoraði í þann mund sem flautað var til hálfleiks og kom Frökkum í 18-14. En Egyptar sýndu styrk sinn í seinni hálfleik og náðu fljótlega að jafna metin, og var gríðarleg spenna í leiknum síðasta korterið og ekki síst á lokamínútunni eins og fyrr segir. Draumur Egypta um að komast í undanúrslit HM, í annað sinn í sögunni og það fyrsta síðan árið 2001, rann hins vegar út.
HM karla í handbolta 2025 Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira