Alls 914 umsóknir um uppkaup í Grindavík samþykktar Lovísa Arnardóttir skrifar 27. nóvember 2024 11:47 Búið er að kaupa um 900 fasteignir í Grindavík á um 68,9 milljarða. Vísir/Vilhelm Alls hafa 914 umsóknir um kaup á húsnæði í Grindavík verið samþykktar hjá fasteignafélaginu Þórkötlu. Afhending hefur farið fram í 822 tilvikum. Þá hefur fasteignafélaginu borist 17 umsóknir um svokallaða hollvinasamninga vegna eigna sem þau hafa keypt í Grindavík. Í október á þessu ári þáðu 571 einstaklingur frá Grindavík leigustuðning en þeim hefur fækkað um nærri helming frá því í febrúar þegar 901 þáði slíkan stuðning.
Þetta kemur fram í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra um aðgerðir fyrir Grindvíkinga í kjölfar eldsumbrota á Reykjanesskaganum sem birt var á vef Alþingis í gær. Þar kemur jafnframt fram að gert sé ráð fyrir því að kostnaður við uppkaup fasteigna í sveitarfélaginu muni kosta ríkið um 75,3 milljarða og að heildarkaupverð 900 fasteigna sem félagið hefur þegar keypt er 68,9 milljarðar. Fasteignafélaginu Þórkötlu hefur borist 17 umsóknir um hollvinasamninga frá fyrrverandi eigendum eigna í Grindavík. Samkvæmt samningunum fær fólk aðgang að húsinu, getur notað það sem geymslu en þarf að sjá um eftirlit í húsnæðinu og greiðir fyrir það 30 þúsund krónur á mánuði. Hægt er að sækja um sölu á húsnæðinu þar til í mars á næsta ári. Í skýrslu ráðherra kemur fram að 10. nóvember á þessu ári höfðu 948 umsóknir um kaup á íbúðarhúsnæði borist. Félagið skiptir umsóknum í almennar umsóknir annars vegar og frávika umsóknir hins vegar. Af þeim 948 umsóknum sem teknar hafa verið til meðferðar eru 836 almennar umsóknir og 112 umsóknir með frávik hvers konar. Fram kemur í skýrslunni að frávikin séu af ýmsu taki, en svo sem umsóknir sem falla utan gildissviðs laganna, álitamál um hvort tímabundnar aðstæður skýri að lögheimili er ekki skráð í íbúðarhúsnæði, önnur veðbönd en húsnæðislán eru áhvílandi, röng skráning á byggingarstigi, óskað er eftir undanþágu fyrir lögheimilisskilyrðinu og fleira. Undanþága á 46 eignum Alls hafa 914 umsóknir verið samþykktar og þegar verið gengið frá 906 kaupsamningum. Afhending hefur farið fram í 822 tilvikum og 775 afsöl verið undirrituð. Þá segir að í skýrslunni hafi í nóvember í fyrra alls 73 eignir verið í eigu einstaklinga sem ekki höfðu lögheimili í þeim. Samkvæmt reglum Þórkötlu var því ekki hægt að kaupa þessar eignir. Brunabótamat þessara eigna var metið um fimm milljarðar. Í skýrslu ráðherra kemur fram að gerðar hafi verið undanþágur á 46 eignum þar sem fallist var á að tímabundnar aðstæður hafi skýrt lögheimilisskráningu eiganda annars staðar. Þá kemur einnig fram að þann 10. nóvember, á þessu ári, hafði félagið hafnað fimm umsóknum á þeim grundvelli að umsækjandi hefði ekki verið með skráð lögheimili í eigninni 10. nóvember 2023. „Í þeim tilvikum gat umsækjandi ekki sýnt fram á að tímabundnar aðstæður skýri að hann var ekki með skráð lögheimili í íbúðarhúsnæðinu þann dag,“ segir í skýrslunni og að félagið hafi enn til meðferðar 13 umsóknir þar sem talið er að sömu aðstæður eigi við. Áætlað kaupverð þessara 18 eigna er samtals um 850 milljónir króna. Þá kemur fram að í nóvember hafi verið gerðar breytingar á heimild til að víkja frá skilyrði um lögheimili í húseign og því gert ráð fyrir að sú breyting muni hafa áhrif í þeim málum sem eru í meðferð. Í skýrslunni segir einnig að í fyrra, þann 10. Nóvember, hafi alls 81 einstaklingur átt eignarhlut í fleiri en einni eign í Grindavík. Af þeim hafi 61 átt 50 prósent eða meira í eign. Eignirnar hafi verið alls 92 og brunabótamat þeirra verið 8,4 milljarðar. Þá kemur einnig fram að í heildina séu 197 íbúðir í eigu lögaðila innan þéttbýliskjarna Grindavíkur og að brunabótamat þeirra sé metið 11 milljarðar. Af þeim eru 31 eign í eigu Grindavíkurbæjar með brunabótamat upp á einn milljarð og þá séu alls 304 eignir í Grindavík sem flokkist sem atvinnuhúsnæði. Brunabótamat þeirra sé 63 milljarðar. Þá séu einnig 30 eignir í eigu búsetufélagsins Búmanna með brunabótamat sem nemur 1,6 milljarða. Færri sem þiggja leigustuðning Í skýrslunni er einnig fjallað um leigustuðning og hversu margir þiggja hann. Samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hafa 1.357 umsóknir um sértækan húsnæðisstuðning verið afgreiddar að fjárhæð 1,8 milljarða króna til og með október 2024. Meðalfjöldi þeirra heimila sem fengu stuðning var 687 heimili á mánuði. Mestur var fjöldinn í apríl, alls 901 heimili, en þeim hefur farið fækkandi síðan og voru 571 í október síðastliðnum sem þáðu stuðning. Af þeim áttu 426 fasteign í Grindavík og af þeim höfðu 193 keypt fasteign á árinu Alls höfðu 1.131 fengið stuðning einhvern tíma á árinu og átt fasteign í Grindavík og af þeim voru 854 kaupendur að fasteign á árinu. Sértækur húsnæðisstuðningur stendur til boða út mars 2025.
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Húsnæðismál Tengdar fréttir „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út á fasteignamarkaðnum. 21. nóvember 2024 06:29 Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi. 1. nóvember 2024 08:28 Iðgjöld til NTÍ munu hækka um fimmtíu prósent Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, eða NTÍ, sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um fimmtíu prósent. Þessi heimild mun verða nýtt frá og með komandi nýársdegi. 27. nóvember 2024 11:42 Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Sjá meira
„Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út á fasteignamarkaðnum. 21. nóvember 2024 06:29
Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi. 1. nóvember 2024 08:28
Iðgjöld til NTÍ munu hækka um fimmtíu prósent Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, eða NTÍ, sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um fimmtíu prósent. Þessi heimild mun verða nýtt frá og með komandi nýársdegi. 27. nóvember 2024 11:42