Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Árni Sæberg skrifar 11. nóvember 2024 09:09 Jón Gunnarsson segir að ekki yrði óeðlilegt ef landsmenn fengju að skila umsögnum um þá sem vilja ríkisborgararétt hér á landi. Vísir/Vilhelm Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir tálbeitu á vegum Heimildarinnar hafa verið ekið um á drossíu af einkabílstjóra og gist á Edition hótelinu á meðan hún njósnaði um son hans. Samkvæmt heimildum Vísis var tálbeitan ekki á vegum Heimildarinnar. Þetta kom fram í viðtali við Jón í Bítinu á Bylgjunni en í morgun greindi hann frá því að blaðamennirnir Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan á Heimildinni hafi beitt tálbeitu til þess að falast eftir upplýsingum um hvalveiðar frá syni Jóns. Fjölskyldan miður sín Jón segir að Gunnar Bergmann sonur hans og fjölskylda séu gjörsamlega miður sín vegna málsins og íhugi nú að leita réttar síns. Lögmaður hafi haft samband við fjölskylduna og tjáð henni að líklega sé grundvöllur fyrir því að kæra blaðamennina. Þeir hafi stundað ólöglegar upptökur og ætlað sér að miðla ólöglegu efni. „Það er auðvitað enn alvarlegra þegar það snýr að æðstu stjórn ríkisins og kemur inn á slík mál. Það lýsir náttúrulega bara í hnotskurn hverjum þeim sem stendur á bak við þetta. Hversu mikið er lagt undir til þess að geta komið pólitísku höggi á ákveðna málaflokka ákveðna einstaklinga. Þú getur ekki stundað svona vinnubrögð í því og verið með saklaust fólk í einhverju slíku, það er þá bara lögreglumál ef menn telja sig hafa vitneskju um einhverja spillingu, hvort sem það er hjá stjórnmálamönnum eða hjá öðrum í samfélaginu.“ Samkvæmt heimildum Vísis var tálbeitan á vegum náttúruverndarsamtaka, sem komu upptökunum til Heimildarinnar. Hélt að um stórt tækifæri væri að ræða Jón segir að tálbeitan hafi sagst vera á vegum stórs svissnesks fjárfestingfélags, sem hyggði á fjárfestingar hér á landi. Gunnar Bergmann sé fasteignasali á Eignamiðlun og fundir hafi verið haldnir fasteignasölunni. Hann hafi haldið að um stórt tækifæri væri að ræða, bæði fyrir hann sjálfan og Eignamiðlun. Mikill flottræfilsháttur hafi verið á manninum en honum hafi verið ekið um á Mercedes Benz og hann hafi gist á Edition, einu dýrasta hóteli landsins. Þangað hafi hann boðið Gunnari Bergmanni út að borða til þess að ræða viðskiptin. Talað hafi svo færst yfir til hvalveiða, en Gunnar Bergmann hefur í gegnum tíðina stundað hrefnuveiðar. „Honum fannst það nú svolítið sérstakt en hann er auðvitað að selja sig gagnvart þessum aðilum og þetta var stórt tækifæri fyrir hann og þetta fyrirtæki, fasteignasöluna, ef allt hefði gengið eftir.“ Hvorki Aðalsteinn né Helgi hafa orðið við beiðni um viðtal vegna málsins. Viðtalið við Jón má sjá í spilaranum hér að neðan: Að neðan má sjá færslu Jóns frá því í morgun í heild. Færsla Jóns í heild Ég og fjölskylda mín erum sleginn yfir því hversu langt svokölluð rannsóknarblaðamennska gengur og ég vona að fólk sjái hvað þetta er orðið fjarri lagi og siðlaust. Undanfarnar vikur virðist hafa verið settur á svið vel skipulagður blekkingarleikur sem leikinn er í margar vikur. Erlendur maður villir á sér heimildir til þess eins að blekkja son minn í þeim tilgangi að koma höggi á mig. Sagan er eftirfarandi. Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur fjárfestir“ frá „Meitri Group“ samband við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjárfesta í fasteignum hér á landi. Sonur minn, sem er fasteignasali, átti í framhaldinu fjarfund með manninum, sem kom svo hingað til lands. „Fjárfestirinn“ sótti son minn á bifreið með einkabílstjóra og skoðuðu þeir nokkur verkefni víða um höfuðborgina og fóru út að borða í lok dags. Í síðustu viku kom hins vegar í ljós að maðurinn hafði villt á sér heimildir, dregið son minn á asnaeyrunum vikum saman án þess að ætla nokkurn tímann að eiga nein viðskipti. Þvert á móti virðist markmiðið hafa verið að hlera son minn og ná af honum leyndum og ólögmætum upptökum að tala um mig og hvalveiðar. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, blaðamenn á Heimildinni og fyrrverandi samstarfsmenn tveggja frambjóðenda Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar, hringdu samtímis í mig og son minn síðasta föstudag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöldspjalli sonar míns og „fjárfestisins“. Sérstök heimasíða var búin til fyrir fjárfestingarsjóðinn í þessum blekkingarleik en síðunni var lokað í framhaldi af símtölum blaðamannanna. Þessar njósnir um son minn hófust um miðjan september, áður en ríkisstjórninni var slitið og ráðherrar VG sögðu sig frá ráðuneytum sínum. Um helgina fékk ég tölvupóst frá Aðalsteini á Heimildinni þar sem hann lagði fyrir mig sjö spurningar, sem ljóst er að byggja á efni úr samtali sonar míns við „fjárfestinn“. Þar sé m.a. haft eftir syni mínum að ég hafi tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið til þess að gefa út leyfi til hvalveiða. Um þetta hefur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálfsögðu enga stoð í raunveruleikanum. Þar þarf ekki að nefna annað en að lögum samkvæmt hafa aðstoðarmenn engar heimildir til að taka stjórnsýsluákvarðanir eða gefa út leyfi af nokkru tagi. Það var mat Bjarna Benediktssonar að málaflokkar matvælaráðuneytisins, sem er eitt atvinnuvegaráðuneytanna, þyrftu á meiri athygli að halda en hann gæti veitt sem ráðherra nokkurra ráðuneyta í starfsstjórn. Forveri hans í ráðuneytinu var þar með tvo aðstoðarmenn. Málaflokkar ráðuneytisins eru fjölmargir og umsókn um leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga aðeins eitt fjölmargra sem koma þar inn. Sonur minn var einnig spurður um ferðalag mitt á alþjóðahvalveiðiráðstefnuna og hver hafi greitt fyrir ferðina. Ég hef greint frá því áður að ég stóð straum af kostnaði við ferðalagið sjálfur en af spurningum blaðamannanna að dæma virðist sonur minn hafa að einhverju leiti gefið annað í skyn umrætt kvöld. Ég hef verið lengi í stjórnmálum og fæ reglulega á mig gagnrýni sem þingmaður og fyrir mínar stjórnmálaskoðanir. Það er hluti af því að starfa á þessum vettvangi. Að ráðast beint gegn fjölskyldunni minni með þessum hætti er hins vegar af öðrum toga. Fjölskyldur þingmanna eiga ekki undir neinum kringumstæðum að þurfa að sæta árásum eins og þessum frá íslenskum fjölmiðlum eða erlendum hagsmunaaðilum og þrýstihópum. Sonur minn er venjulegur fjölskyldufaðir í rekstri, sem eyddi mörgum vikum í að eltast við gylliboð svikahrapps sem engin innistæða var fyrir. Í þeim samskiptum lagði hann mikið á sig til að heilla hinn meinta fjárfesti og tryggja viðskiptin, en fór rangt með í einhverjum málum sem þar voru til umræðu. Sonur minn hefur leitað til lögmanns og mun hyggst hann leggja fram kæru vegna málsins enda hefur verið gróflega brotið gegn friðhelgi einkalífs hans með ólögmætum upptökum sem honum varð ekki kunnugt um fyrr en Helgi Seljan upplýsti hann um það. Eftir stendur hins vegar að um allan heim eru vinnubrögð eins og þessi talin óviðeigandi og ólíðandi. Ég læt ekki árásir eins og þessar hafa áhrif á mína afstöðu gagnvart sjálfbærri nýtingu auðlinda. Afstaða mín til hvalveiða byggir á sjálfbærni veiða við Íslandsstrendur, menningu okkar og sögu. Ég mun áfram halda áfram að berjast fyrir íslenskum hagsmunum og sjálfbærri nýtingu auðlinda okkar þrátt fyrir þessar ógeðfelldu tilraunir til að fæla mig frá mínu starfi. Sjálfstæðisflokkurinn Fjölmiðlar Hvalveiðar Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Upptökur á Reykjavík Edition Mest lesið Ætlaði ekki að trúa því að sonurinn hefði sjálfur staðið upp úr bílnum Innlent Norðmenn uggandi vegna mögulegra viðbragða Trump Erlent Grínaðist með Möggu Stínu: „Fyrsta líflátshótunin kom 18 mínútum seinna“ Innlent Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Innlent Nóbelsnefndin hafi valið pólitík fram yfir frið Erlent Venesúelskur stjórnarandstæðingur hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Innlent Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun“ Innlent Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Erlent Samfylkingin með mesta fylgi allra flokka Innlent Fleiri fréttir Þarf að endurgreiða móður vegna ofrukkunar í forræðismáli Fjöldi látinn eftir að verksmiðja sprakk í loft upp Múhameð fær blessun mannanafnanefndar Samfylkingin með mesta fylgi allra flokka Skipaður í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosó Sigurbjörg skipuð forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar „Sorglegt“ ef börnin lesa ekki Laxness og Íslendingasögur Fyrstu skref til friðar á Gasa tekin og Friðarverðlaunin fara til Venesúela Leggja til tæplega 44 þúsund tonna loðnukvóta Grínaðist með Möggu Stínu: „Fyrsta líflátshótunin kom 18 mínútum seinna“ Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða Bein útsending: Athafnaborgin Reykjavík kynnt frá ólíkum hliðum Ætlaði ekki að trúa því að sonurinn hefði sjálfur staðið upp úr bílnum Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Brotthvarf Laxness: „Ekkert sem kemur í staðinn fyrir að vera einn í sínum heimi með bók“ Þakklát Möggu Stínu og segir vopnahlé ljósið við enda ganganna Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun“ Söguleg stund Ekki sjálfsvörn að berja með steypuklumpi í höfuðið Laxnessleysið skandall eða stormur í vatnsglasi? Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Tólf eldislaxar fundust í sex ám Rannsaka hvort bílstjórinn hafi dottað Bein útsending: Dagur landbúnaðarins „Alls ekki og engan veginn“ sé hægt að hagga ESB Selta olli rafmagnsleysi á Suðurlandi Friður á Gasa mögulega í sjónmáli og rætt við utanríkisráðherra Palestínu Mosfellingur hjá Strætó leiðir unga Framsóknarmenn „Hvað varð um að gera meira, hraðar?“ Sjá meira
Þetta kom fram í viðtali við Jón í Bítinu á Bylgjunni en í morgun greindi hann frá því að blaðamennirnir Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan á Heimildinni hafi beitt tálbeitu til þess að falast eftir upplýsingum um hvalveiðar frá syni Jóns. Fjölskyldan miður sín Jón segir að Gunnar Bergmann sonur hans og fjölskylda séu gjörsamlega miður sín vegna málsins og íhugi nú að leita réttar síns. Lögmaður hafi haft samband við fjölskylduna og tjáð henni að líklega sé grundvöllur fyrir því að kæra blaðamennina. Þeir hafi stundað ólöglegar upptökur og ætlað sér að miðla ólöglegu efni. „Það er auðvitað enn alvarlegra þegar það snýr að æðstu stjórn ríkisins og kemur inn á slík mál. Það lýsir náttúrulega bara í hnotskurn hverjum þeim sem stendur á bak við þetta. Hversu mikið er lagt undir til þess að geta komið pólitísku höggi á ákveðna málaflokka ákveðna einstaklinga. Þú getur ekki stundað svona vinnubrögð í því og verið með saklaust fólk í einhverju slíku, það er þá bara lögreglumál ef menn telja sig hafa vitneskju um einhverja spillingu, hvort sem það er hjá stjórnmálamönnum eða hjá öðrum í samfélaginu.“ Samkvæmt heimildum Vísis var tálbeitan á vegum náttúruverndarsamtaka, sem komu upptökunum til Heimildarinnar. Hélt að um stórt tækifæri væri að ræða Jón segir að tálbeitan hafi sagst vera á vegum stórs svissnesks fjárfestingfélags, sem hyggði á fjárfestingar hér á landi. Gunnar Bergmann sé fasteignasali á Eignamiðlun og fundir hafi verið haldnir fasteignasölunni. Hann hafi haldið að um stórt tækifæri væri að ræða, bæði fyrir hann sjálfan og Eignamiðlun. Mikill flottræfilsháttur hafi verið á manninum en honum hafi verið ekið um á Mercedes Benz og hann hafi gist á Edition, einu dýrasta hóteli landsins. Þangað hafi hann boðið Gunnari Bergmanni út að borða til þess að ræða viðskiptin. Talað hafi svo færst yfir til hvalveiða, en Gunnar Bergmann hefur í gegnum tíðina stundað hrefnuveiðar. „Honum fannst það nú svolítið sérstakt en hann er auðvitað að selja sig gagnvart þessum aðilum og þetta var stórt tækifæri fyrir hann og þetta fyrirtæki, fasteignasöluna, ef allt hefði gengið eftir.“ Hvorki Aðalsteinn né Helgi hafa orðið við beiðni um viðtal vegna málsins. Viðtalið við Jón má sjá í spilaranum hér að neðan: Að neðan má sjá færslu Jóns frá því í morgun í heild. Færsla Jóns í heild Ég og fjölskylda mín erum sleginn yfir því hversu langt svokölluð rannsóknarblaðamennska gengur og ég vona að fólk sjái hvað þetta er orðið fjarri lagi og siðlaust. Undanfarnar vikur virðist hafa verið settur á svið vel skipulagður blekkingarleikur sem leikinn er í margar vikur. Erlendur maður villir á sér heimildir til þess eins að blekkja son minn í þeim tilgangi að koma höggi á mig. Sagan er eftirfarandi. Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur fjárfestir“ frá „Meitri Group“ samband við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjárfesta í fasteignum hér á landi. Sonur minn, sem er fasteignasali, átti í framhaldinu fjarfund með manninum, sem kom svo hingað til lands. „Fjárfestirinn“ sótti son minn á bifreið með einkabílstjóra og skoðuðu þeir nokkur verkefni víða um höfuðborgina og fóru út að borða í lok dags. Í síðustu viku kom hins vegar í ljós að maðurinn hafði villt á sér heimildir, dregið son minn á asnaeyrunum vikum saman án þess að ætla nokkurn tímann að eiga nein viðskipti. Þvert á móti virðist markmiðið hafa verið að hlera son minn og ná af honum leyndum og ólögmætum upptökum að tala um mig og hvalveiðar. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, blaðamenn á Heimildinni og fyrrverandi samstarfsmenn tveggja frambjóðenda Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar, hringdu samtímis í mig og son minn síðasta föstudag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöldspjalli sonar míns og „fjárfestisins“. Sérstök heimasíða var búin til fyrir fjárfestingarsjóðinn í þessum blekkingarleik en síðunni var lokað í framhaldi af símtölum blaðamannanna. Þessar njósnir um son minn hófust um miðjan september, áður en ríkisstjórninni var slitið og ráðherrar VG sögðu sig frá ráðuneytum sínum. Um helgina fékk ég tölvupóst frá Aðalsteini á Heimildinni þar sem hann lagði fyrir mig sjö spurningar, sem ljóst er að byggja á efni úr samtali sonar míns við „fjárfestinn“. Þar sé m.a. haft eftir syni mínum að ég hafi tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið til þess að gefa út leyfi til hvalveiða. Um þetta hefur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálfsögðu enga stoð í raunveruleikanum. Þar þarf ekki að nefna annað en að lögum samkvæmt hafa aðstoðarmenn engar heimildir til að taka stjórnsýsluákvarðanir eða gefa út leyfi af nokkru tagi. Það var mat Bjarna Benediktssonar að málaflokkar matvælaráðuneytisins, sem er eitt atvinnuvegaráðuneytanna, þyrftu á meiri athygli að halda en hann gæti veitt sem ráðherra nokkurra ráðuneyta í starfsstjórn. Forveri hans í ráðuneytinu var þar með tvo aðstoðarmenn. Málaflokkar ráðuneytisins eru fjölmargir og umsókn um leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga aðeins eitt fjölmargra sem koma þar inn. Sonur minn var einnig spurður um ferðalag mitt á alþjóðahvalveiðiráðstefnuna og hver hafi greitt fyrir ferðina. Ég hef greint frá því áður að ég stóð straum af kostnaði við ferðalagið sjálfur en af spurningum blaðamannanna að dæma virðist sonur minn hafa að einhverju leiti gefið annað í skyn umrætt kvöld. Ég hef verið lengi í stjórnmálum og fæ reglulega á mig gagnrýni sem þingmaður og fyrir mínar stjórnmálaskoðanir. Það er hluti af því að starfa á þessum vettvangi. Að ráðast beint gegn fjölskyldunni minni með þessum hætti er hins vegar af öðrum toga. Fjölskyldur þingmanna eiga ekki undir neinum kringumstæðum að þurfa að sæta árásum eins og þessum frá íslenskum fjölmiðlum eða erlendum hagsmunaaðilum og þrýstihópum. Sonur minn er venjulegur fjölskyldufaðir í rekstri, sem eyddi mörgum vikum í að eltast við gylliboð svikahrapps sem engin innistæða var fyrir. Í þeim samskiptum lagði hann mikið á sig til að heilla hinn meinta fjárfesti og tryggja viðskiptin, en fór rangt með í einhverjum málum sem þar voru til umræðu. Sonur minn hefur leitað til lögmanns og mun hyggst hann leggja fram kæru vegna málsins enda hefur verið gróflega brotið gegn friðhelgi einkalífs hans með ólögmætum upptökum sem honum varð ekki kunnugt um fyrr en Helgi Seljan upplýsti hann um það. Eftir stendur hins vegar að um allan heim eru vinnubrögð eins og þessi talin óviðeigandi og ólíðandi. Ég læt ekki árásir eins og þessar hafa áhrif á mína afstöðu gagnvart sjálfbærri nýtingu auðlinda. Afstaða mín til hvalveiða byggir á sjálfbærni veiða við Íslandsstrendur, menningu okkar og sögu. Ég mun áfram halda áfram að berjast fyrir íslenskum hagsmunum og sjálfbærri nýtingu auðlinda okkar þrátt fyrir þessar ógeðfelldu tilraunir til að fæla mig frá mínu starfi.
Færsla Jóns í heild Ég og fjölskylda mín erum sleginn yfir því hversu langt svokölluð rannsóknarblaðamennska gengur og ég vona að fólk sjái hvað þetta er orðið fjarri lagi og siðlaust. Undanfarnar vikur virðist hafa verið settur á svið vel skipulagður blekkingarleikur sem leikinn er í margar vikur. Erlendur maður villir á sér heimildir til þess eins að blekkja son minn í þeim tilgangi að koma höggi á mig. Sagan er eftirfarandi. Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur fjárfestir“ frá „Meitri Group“ samband við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjárfesta í fasteignum hér á landi. Sonur minn, sem er fasteignasali, átti í framhaldinu fjarfund með manninum, sem kom svo hingað til lands. „Fjárfestirinn“ sótti son minn á bifreið með einkabílstjóra og skoðuðu þeir nokkur verkefni víða um höfuðborgina og fóru út að borða í lok dags. Í síðustu viku kom hins vegar í ljós að maðurinn hafði villt á sér heimildir, dregið son minn á asnaeyrunum vikum saman án þess að ætla nokkurn tímann að eiga nein viðskipti. Þvert á móti virðist markmiðið hafa verið að hlera son minn og ná af honum leyndum og ólögmætum upptökum að tala um mig og hvalveiðar. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, blaðamenn á Heimildinni og fyrrverandi samstarfsmenn tveggja frambjóðenda Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar, hringdu samtímis í mig og son minn síðasta föstudag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöldspjalli sonar míns og „fjárfestisins“. Sérstök heimasíða var búin til fyrir fjárfestingarsjóðinn í þessum blekkingarleik en síðunni var lokað í framhaldi af símtölum blaðamannanna. Þessar njósnir um son minn hófust um miðjan september, áður en ríkisstjórninni var slitið og ráðherrar VG sögðu sig frá ráðuneytum sínum. Um helgina fékk ég tölvupóst frá Aðalsteini á Heimildinni þar sem hann lagði fyrir mig sjö spurningar, sem ljóst er að byggja á efni úr samtali sonar míns við „fjárfestinn“. Þar sé m.a. haft eftir syni mínum að ég hafi tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið til þess að gefa út leyfi til hvalveiða. Um þetta hefur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálfsögðu enga stoð í raunveruleikanum. Þar þarf ekki að nefna annað en að lögum samkvæmt hafa aðstoðarmenn engar heimildir til að taka stjórnsýsluákvarðanir eða gefa út leyfi af nokkru tagi. Það var mat Bjarna Benediktssonar að málaflokkar matvælaráðuneytisins, sem er eitt atvinnuvegaráðuneytanna, þyrftu á meiri athygli að halda en hann gæti veitt sem ráðherra nokkurra ráðuneyta í starfsstjórn. Forveri hans í ráðuneytinu var þar með tvo aðstoðarmenn. Málaflokkar ráðuneytisins eru fjölmargir og umsókn um leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga aðeins eitt fjölmargra sem koma þar inn. Sonur minn var einnig spurður um ferðalag mitt á alþjóðahvalveiðiráðstefnuna og hver hafi greitt fyrir ferðina. Ég hef greint frá því áður að ég stóð straum af kostnaði við ferðalagið sjálfur en af spurningum blaðamannanna að dæma virðist sonur minn hafa að einhverju leiti gefið annað í skyn umrætt kvöld. Ég hef verið lengi í stjórnmálum og fæ reglulega á mig gagnrýni sem þingmaður og fyrir mínar stjórnmálaskoðanir. Það er hluti af því að starfa á þessum vettvangi. Að ráðast beint gegn fjölskyldunni minni með þessum hætti er hins vegar af öðrum toga. Fjölskyldur þingmanna eiga ekki undir neinum kringumstæðum að þurfa að sæta árásum eins og þessum frá íslenskum fjölmiðlum eða erlendum hagsmunaaðilum og þrýstihópum. Sonur minn er venjulegur fjölskyldufaðir í rekstri, sem eyddi mörgum vikum í að eltast við gylliboð svikahrapps sem engin innistæða var fyrir. Í þeim samskiptum lagði hann mikið á sig til að heilla hinn meinta fjárfesti og tryggja viðskiptin, en fór rangt með í einhverjum málum sem þar voru til umræðu. Sonur minn hefur leitað til lögmanns og mun hyggst hann leggja fram kæru vegna málsins enda hefur verið gróflega brotið gegn friðhelgi einkalífs hans með ólögmætum upptökum sem honum varð ekki kunnugt um fyrr en Helgi Seljan upplýsti hann um það. Eftir stendur hins vegar að um allan heim eru vinnubrögð eins og þessi talin óviðeigandi og ólíðandi. Ég læt ekki árásir eins og þessar hafa áhrif á mína afstöðu gagnvart sjálfbærri nýtingu auðlinda. Afstaða mín til hvalveiða byggir á sjálfbærni veiða við Íslandsstrendur, menningu okkar og sögu. Ég mun áfram halda áfram að berjast fyrir íslenskum hagsmunum og sjálfbærri nýtingu auðlinda okkar þrátt fyrir þessar ógeðfelldu tilraunir til að fæla mig frá mínu starfi.
Sjálfstæðisflokkurinn Fjölmiðlar Hvalveiðar Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Upptökur á Reykjavík Edition Mest lesið Ætlaði ekki að trúa því að sonurinn hefði sjálfur staðið upp úr bílnum Innlent Norðmenn uggandi vegna mögulegra viðbragða Trump Erlent Grínaðist með Möggu Stínu: „Fyrsta líflátshótunin kom 18 mínútum seinna“ Innlent Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Innlent Nóbelsnefndin hafi valið pólitík fram yfir frið Erlent Venesúelskur stjórnarandstæðingur hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Innlent Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun“ Innlent Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Erlent Samfylkingin með mesta fylgi allra flokka Innlent Fleiri fréttir Þarf að endurgreiða móður vegna ofrukkunar í forræðismáli Fjöldi látinn eftir að verksmiðja sprakk í loft upp Múhameð fær blessun mannanafnanefndar Samfylkingin með mesta fylgi allra flokka Skipaður í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosó Sigurbjörg skipuð forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar „Sorglegt“ ef börnin lesa ekki Laxness og Íslendingasögur Fyrstu skref til friðar á Gasa tekin og Friðarverðlaunin fara til Venesúela Leggja til tæplega 44 þúsund tonna loðnukvóta Grínaðist með Möggu Stínu: „Fyrsta líflátshótunin kom 18 mínútum seinna“ Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða Bein útsending: Athafnaborgin Reykjavík kynnt frá ólíkum hliðum Ætlaði ekki að trúa því að sonurinn hefði sjálfur staðið upp úr bílnum Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Brotthvarf Laxness: „Ekkert sem kemur í staðinn fyrir að vera einn í sínum heimi með bók“ Þakklát Möggu Stínu og segir vopnahlé ljósið við enda ganganna Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun“ Söguleg stund Ekki sjálfsvörn að berja með steypuklumpi í höfuðið Laxnessleysið skandall eða stormur í vatnsglasi? Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Tólf eldislaxar fundust í sex ám Rannsaka hvort bílstjórinn hafi dottað Bein útsending: Dagur landbúnaðarins „Alls ekki og engan veginn“ sé hægt að hagga ESB Selta olli rafmagnsleysi á Suðurlandi Friður á Gasa mögulega í sjónmáli og rætt við utanríkisráðherra Palestínu Mosfellingur hjá Strætó leiðir unga Framsóknarmenn „Hvað varð um að gera meira, hraðar?“ Sjá meira