Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2024 10:01 Gregg Popovich er orðinn 75 ára gamall en hann hefur þjálfað San Antonio Spurs frá árinu 1996. Getty/Ronald Cortes Gregg Popovich, þjálfari San Antonio Spurs, mun ekki stýra liðinu á næstunni eftir að hann veiktist skyndilega fyrir leik liðsins um helgina.
Aðstoðarmaður hans Mitch Johnson mun taka við aðalþjálfarastöðunni á meðan og hann stýrði liðinu í tapleik á móti Los Angeles Clippers í nótt. Popovich veiktist fyrir leik liðsins við Minnesota Timberwolves á laugardagskvöldið og missti af þeim leik. Spurs gaf það síðan út í gær að þjálfarinn myndi ekki ferðast með liðinu fyrir komandi leiki í Los Angeles og Houston. Það hefur ekki verið gefið upp hvernig veikindi þetta eru eða gefinn upp tímarammi fyrir hugsanlega endurkomu þjálfarans. Hann verður frá um óákveðinn tíma. Johnson talaði um það í gær að hann hefði talað við Popovich á sunnudagskvöldið og það hafi verið gott hljóð í honum. Þetta er í þriðja sinn sem Johnson tekur við liðinu í forföllum Popovich. Gregg Popovich er 75 ára gamall og er sá þjálfari sem hefur unnið flesta leiki í NBA deildinni. Hann hefur gert Spurs fimm sinnum að NBA meisturum. San Antonio Spurs coach Gregg Popovich suffered a health issue before Saturday’s game and assistant Mitch Johnson is expected to be the interim head coach for indefinite period, including Monday vs. Clippers and Wednesday vs. Rockets, sources tell ESPN. pic.twitter.com/qqdDtyc2GJ— Shams Charania (@ShamsCharania) November 4, 2024
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira