Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Sindri Sverrisson skrifar 18. október 2024 19:45 Björgvin Páll Gústavsson skoraði eitt af mörkum Vals í kvöld. vísir/Anton Kvenna- og karlalið Vals voru bæði í eldlínunni í kvöld í Olís-deildunum í handbolta. Valskonur unnu Gróttu af öryggi, 38-30, og hafa unnið alla leiki sína til þessa, en karlalið Vals lenti í hremmingum gegn nýliðum Fjölnis í Grafarvogi.
Valsmenn náðu með ótrúlegri endurkomu að koma í veg fyrir sigur Porto í Kaplakrika á þriðjudagskvöld, þegar liðin gerðu jafntefli í Evrópudeildinni. Leikur við nýliða Fjölnis hefði því kannski átt að vera auðvelt verkefni, í samanburði, en Fjölnismenn gáfu ekkert eftir og voru með frumkvæðið þegar skammt var eftir. Þeir komust til að mynda í 32-30 og voru 33-32 yfir þegar þrjár mínútur voru eftir. Þá skoruðu Valsmenn hins vegar þrjú mörk í röð og náðu að lokum að landa eins marks sigri, 35-34. Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur hjá Val með átta mörk og Viktor Sigurðsson skoraði fimm. Hjá Fjölni var Óðinn Freyr Heiðmarsson markahæstur með átta mörk og þeir Björgvin Páll Rúnarsson og Alex Máni Oddnýjarson skoruðu sjö mörk hvor. Valskonur eru á flugi í Olís-deildinni.vísir/Anton Á Seltjarnarnesi voru Valskonur hins vegar ekki í neinum vandræðum og höfðu náð sex marka forskoti í hálfleik, 20-14. Þórey Anna Ásgeirsdóttir var markahæst hjá Val með ellefu mörk og Sigríður Hauksdóttir skoraði sjö, og þær Elín Rósa Magnúsdóttir og Lovísa Thompson sex mörk hvor. Hjá Gróttu var Ída Margrét Stefánsdóttir markahæst með sex mörk en þær Katrín Anna Ásmundsdóttir og Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor.
Olís-deild karla Fjölnir Valur Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira