Ómar og Gísli frábærir í stórleiknum Sindri Sverrisson skrifar 12. október 2024 15:38 Ómar Ingi Magnússon fagnar marki gegn Flensburg í dag en hann var markahæstur hjá Magdeburg. Getty/Frank Molter Ómar Ingi Magnússon fór á kostum fyrir Magdeburg í stórleiknum við Flensburg á útivelli í þýsku 1. Deildinni í handbolta í dag.
Ómar var markahæsti maður Magdeburg í leiknum með tíu mörk, en liðið fagnaði dýrmætum og öflugum 29-27 sigri. Sex af mörkum Ómars komu af vítalínunni þar sem hann var öryggið uppmálað og nýtti öll nema eitt af vítum sínum. Gísli Þorgeir Kristjánsson var einnig öflugur og skoraði fjögur mörk og átti fimm stoðsendingar, eða flestar allra á vellinum. Ómar Ingi Magnússon fékk högg á höfuðið í leiknum en það kom ekki í veg fyrir að hann skoraði tíu mörk.Getty/Frank Molter Magdeburg komst í 17-13 í fyrri hálfleik en Flensburg náði svo að jafna metin og var staðan 23-23 þegar tæplega korter var eftir. Ómar Ingi kom þá Magdeburg yfir af vítalínunni, og svo aftur í 25-24, og eftir það tókst Flensburg ekki að jafna aftur. Þetta var fyrsta tap Flensburg á leiktíðinni en liðið er með níu stig í 2. sæti. Magdeburg er nú með átta stig og á leik til góða á Flensburg, og á topplið Melsungen sem er með tíu stig. Arnór stýrði Holstebro til fjórða sigursins Arnór Atlason stýrði sínum mönnum í TTH Holstebro til sigurs gegn Skjern á útivelli, 23-20, í dönsku úrvalsdeildinni. Holstebro hefur því unnið fjóra af fyrstu sjö leikjum sínum á tímabilinu og er, alla vega tímabundið, í 3. sæti deildarinnar með níu stig.
Þýski handboltinn Danski handboltinn Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sport Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira